Jóhanna Sig segi af sér tafarlaust!
30.1.2010 | 16:49
Þetta gengur ekki lengur. Meðan forseti Íslands ver
íslenzkan málstað í Icesave-deilunni á alþjóðlegum vett-
vangi eins og forseta sæmir, gengur forsætisráðherra,
Jóhanna Sigurðardóttir enn og aftur fram, og talar gegn
íslenzkum hagsmunum, og tekur sífellt undir með hinum
erlendu kúgunaraðilum, Bretum og Hollendingum. Ýjar að
því meir að segja við CNN fréttastofuna að ákvörðun Ólafs
Ragnars forseta um að skrifa ekki undir Icesave geti tafið
efnahagsbatann á Íslandi, og að Ísland verði hluti af ESB.
Það er löngu kominn tími til að Jóhanna Sigurðardóttir,
sem á að vera forsætisráðherra íslenzka lýðveldisins,
segi TAFARLAUST af sér fyrir óþjóðhollustu og and-þjóð-
leg viðhorf. Hún hefur með Icesave-þjóðsvikum sínum
gert vítaverða atlögu að efnahagslegu sjálfstæði þjóðar-
innar til áratuga, og gert alvarlega tilraun þar með til að
rústa íslenzku velferðarkerfi, og þar með að skapa eymd
og fátækt á Íslandi til langframa. Þá hefur Jóhanna Sig-
urðardóttir gert alvarlega atlögu að sjálfstæði og fullveldi
Íslands með því að stuðla að inngöngu Íslands í ESB.
Tími Jóhönnu er því liðinn! Og það fyrir margt löngu!
ÁFRAM ÍSLAND! EKKI ESB né SCHENGEN! EKKERT ICESAVE né AGS!
www.fullvalda.is
www.frjálstisland.is
|
„Það er verið að kúga okkur" |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook







thjodarheidur
fullvalda
tilveran-i-esb
sveiflan
duddi9
jonvalurjensson
magnusthor
fannarh
hannesgi
vidhorf
gmaria
altice
kolbrunerin
islandsfengur
pallvil
alit
siggith
friggi
thorsteinnhelgi
sigurjonth
axelthor
svarthamar
ea
andres
polites
stebbifr
jaj
fiskurfiskur
dullur
nielsen
sveinnhj
maeglika
sjonsson
skodunmin
partners
vestfirdir
esv
valdisig
siggisig
hugsun
geiragustsson
kristjan9
hvala
einherji
jensgud
solir
vefritid
eeelle
hlekkur
astromix
hogni
skessa
juliusbearsson
tomasha
gagnrynandi
rs1600
gmc
redlion
sushanta
rafng
huldumenn
predikarinn
ziggi
hallarut
esb
veravakandi
mal214
dramb
toro
benediktae
doddidoddi
skulablogg
rynir
olafurthorsteins
ksh
prakkarinn
gun
krist
brandarar
godinn
nytthugarfar
emilkr
gattin
morgunbladid
morgunblogg
sighar
gudjul
Athugasemdir
Ég vil líka endurskoða EES. og ETA 3 ríki eftir. Sviss í samkeppni að vera talið hlutlausasta ríki í heimi. Noregur í að flytja út fullvinnslu sjávarafurða.
Bretar og Hollendingar eru ekki í Meirihluti í EU. Brugðust skyldu sinni að forða dýru gjaldþroti. 2005 áttu þeir að loka útbúum vegna greiðslu erfiðleika þeirra.
Júlíus Björnsson, 30.1.2010 kl. 17:10
Jóhanna á ekkert erindi í stjórn lengur hennar tími er liðinn!
Sigurður Haraldsson, 30.1.2010 kl. 18:03
Guðmundur !
Ertu ekki búinn að fyrirgefa rétti þínum fyrir löngu að gera einhverjar kröfur til Jóhönnu ?
Eða, ertu að segja eitthvað nýtt ?
Kaustu hana ?
JR (IP-tala skráð) 30.1.2010 kl. 19:14
Jóhanna hvað?
er ekki verið að mynda nýja stjórn án samfylkingarinnar - XD XB XG
Ólafur Ingi Hrólfsson, 30.1.2010 kl. 19:36
Það eru reyndar 4 ríki í EFTA; það vantar Liechtenstein hjá þér.
Kv. Sigurjón
Sigurjón Vilhjálmsson, 30.1.2010 kl. 21:04
Eitthvað verður að gera stjórnin virkar sem gereyðingarvopn á ísland! Það er verið að verja þjófana sem komu okkur í þetta vonlausu stöðu ekki búið að ná svo mikið sem einum hvað er í gangi. Spaugstofan í kvöld sýndi það og sannaði hvað er í gangi, alveg ótrúlegt að horfa á þetta aðgerðarleysi stjórnvalda gegn fjárglæframönnunum. HVAR ERU PENINGARNIR SEM ÞEIR STÁLU?
Sigurður Haraldsson, 30.1.2010 kl. 21:56
Til þess að skíra mál sitt þá þarf að tala og til þess að þjóð sé marktæk þá þarf hún að standa saman. Jóhanna ákvað hinsvegar að byrja á öfugum enda og notaði allt afl stjórnar sinnar til að sundra þingi og þjóð með Evrópu kjaftæði .
Vona bara að við sameinumst í að segja hátt og skírt Nei!!! og snúum okkur svo að AGS og krefjumst svara við því hvort hann ætlar eða ætlar ekki.
Evrópu með sína seig fljótandi sýróps heila verður líka að átta sig á að við eru ekki alveg dauð og getum farið útfyrir.
Hrólfur Þ Hraundal, 30.1.2010 kl. 23:11
Nákvæmlega. Af hverju gætum við ekki stofnað "Norður-íshafsbandalagið" með þeim þjóðum sem hafa reynst okkur vinir á ögurstundu. Ísland, Noregur, Færeyjar, Grænland, Kanada og hugsanlega Rússland eiga ágætis samleið. Engin sjáanleg ástæða að leggjast á bakið fyrir Breta eða Spánverja bara til að fá einhverja Evru eftir 150 ár.
Skúmur , 31.1.2010 kl. 02:22
Það er það á hreinu Sigurjón, takk fyrir það.
Júlíus Björnsson, 31.1.2010 kl. 17:39
Zumann alltaf ferskur og með nýja vinkla á málin..
hilmar jónsson, 31.1.2010 kl. 19:22
Tek undir sjónarmið ykkar Júlíus, Sigurður og Skúmur og takk fyrir innlitin
hér!
Guðmundur Jónas Kristjánsson, 31.1.2010 kl. 20:41
Grikklandi afsannar alla sossa tækifærisinna sem nærast á striti annarra.
Júlíus Björnsson, 31.1.2010 kl. 21:04
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.