Steingrímur J og Jóhanna helstu óvinir almennings á Íslandi


   Mestu  forkólfar svokallaðra vinstriflokka á Íslandi, Steingrímur
J. og Jóhanna Sig, eru  orðin helstu óvinir almennings á Íslandi.
Og þar með íslenzkrar þjóðar. Ein alvarlegasta aðför sem nokkru
sinni hefur verið gerð að  íslenzkum  hagsmunum og  lífskjörum
almennings á Íslandi, var þegar þessir forkólfar ætluðu að neyða
Icesave-þjóðsvikasamninginn upp á þjóðina. Láta þjóðina greiða
hundruð milljarða án neinna lagastoða vegna glæpa útrásarmafíu-
ósa í útlöndum. Hneppa þjóðina í eymd og fátækt til áratuga. Allt
til að geðjast erlendum nýlenduveldum og valdhöfunum í Brussel.  

   Í  kjölfar uppgjörs bankahrunsins er það krafa almennings á Ís-
landi að öll Icesave-þjóðsvikin verði rannsökuð frá grunni. Og að
helstu forkólfar þess verði sóttir til saka, vegna svika gegn þjóð-
inni og íslenzkum þjóðarhagsmunum!

   Þá ber að sækja þessa andþjóðlegu stjórnmálamenn til saka fyrir
eina mestu aðför að íslenzku fullveldi og þjóðfrelsi frá lýðveldisstofnun,
með því að ætla að innlima Ísland í Stórríki Evrópu, sem stendur  nú á
brauðfótum með ónýtan gjaldmiðil.

   ÁFRAM ÍSLAND! EKKI ESB né SCHENGEN! EKKERT ICESAVE né AGS! 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Heill og sæll Guðmundur Jónas; æfinlega !

Og; umfram allt. Ekki skyldum við gleyma forkólfum hinna glæpa flokkanna líka, Guðmundur minn.

Þeir eru nú ekki beysnir; þeir Bjarni og Sigmundur Davíð, svo sem.

Báðir; með fúarafta frjálshyggjunnar, innanborðs - ekkert síður, en forkólfar S og V lista óhroðans, svo sem.

Með beztu kveðjum; sem jafnan /

Óskar Helgi Helgason

 

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 16.5.2010 kl. 02:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband