En hvað með mútugreiðslur ríkisstjórnarinnar og ESB ?


    Í ljósi hinnar miklu umræðu um styrki til ýmissa stjórnmálamanna
og flokka þeirra á undanförnum árum, er vert að spyrja. En hvað
með  sjálfa  ríkisstjórnina  og  ESB?  Því nú hyggst ESB í samvinnu
við ríkisstjórnina veita hvorki  meir  né  minna en 4 milljarða í svo-
kallaða styrki  vegna  ESB-umsóknar Íslands. Sem  eru  EKKERT
ANNAÐ EN  HREINAR OG  KLÁRAR  MÚTUR! Mútur  til að hafa áhrif
á að Íslendingar gerist ESB-sinnaðir og til að  auðvelda  þeim allt
AÐLÖGUNARFERLIÐ að ESB. Utan þess sem þetta eru ekkert annað
en VÍTAVERÐ AFSKIPTI erlends ríkis (ESB) að innanríkismálum okkar
Íslendinga.

   Já hvað með allar þessar væntanlegu mútugreiðslur og styrki
upp á heila 4 milljarða frá valdhöfunum í Brussel? Til ákveðinna
hópa, EINSTAKLINGA,  og verkefna á Íslandi ?  Eru styrkirnir um-
töluðu síðustu ára ,(sbr.td.   Guðlaugur Þór margumtalaði) ekki
bara  hjóm eitt borið saman við þessar stórkostlegu  og vítaverðu
mútur frá Brussel? Og er  hægt að hugsa sér spilltari og siðlausari
ríkisstjórn sem samþykkir slík?  Og í ljósi alvarleika málsins, ber þá
ekki ráðherrum  slíkrar  mútustjórnar eins og Jóhönnu Sig og Stein-
gríms J að segja af sér?  OG ÞAÐ TAFARLAUST!!!!!!!!!!!

   ÁFRAM ÍSLAND! EKKI ESB né SCHENGEN! EKKERT ICESAVE né AGS!

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Þessar greiðslur eru furðulegar Guðmundur, það er alveg rétt.

kv.Guðrún Maria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 4.7.2010 kl. 02:43

2 identicon

Já þar fyrir utan fær Ísland á hverju ári hundruðir milljóna í rannsóknar styrki frá ESB. Eru það ekki mútur líka? Og vegna Schengen samstarfsins, þá fáum við jú einnig styrki, þó ekki mikla. Eru allar þessar greiðslur ekki bara mútur! Og hvað með toll frjáls viðskipti vegna EES, það hljóta líka að vera mútur líka!

Bjarni (IP-tala skráð) 4.7.2010 kl. 09:13

3 Smámynd: Gunnar Heiðarsson

Almennt er nú talið að styrkir til stjórnmálamanna séu ósiðlegir. Reyndar er þessi skoðun til þess að gera ný í okkar þjóðfélagi. Ég tel sjálfur að svo sé.

Ástæðan er einkum sú að sá sem þiggur styrk frá ákveðnum aðila gæti hugsanlega dregið taum þess aðila, þegar um þau málefni er fjallað er hafa áhrif á rekstur eða afkomu hans. Það er þetta stóra EF sem skiptir máli. Sumir menn eru sterkir og geta staðist þannig þrýsting, en flestir láta undan. Það er auðveldara.

Það er ljóst að styrkir ESB eru í eðli sínu sömu styrkir og menn voru að fá frá bönkum og stórfyrirtækjum. Það er einnig ljóst að viðtökumenn ESB styrjanna eru mjög á bandi ESB og munu nýta þessa styrki sínum málstað og þá um leið málstað ESB, til framdráttar.

Sagt er að þessir styrkir séu til að auðvelda okkur "aðlögunarferlið", enn ein staðfesting á að ekki er um samningsferli að ræða, en að sjálfsögðu mun mestur hluti þeirra fara til áróðursvélar Samfylkingar!! Það er barnaskapur að hald að þetta fé verði ekki notað til áróðurs!!

Gunnar Heiðarsson, 4.7.2010 kl. 09:15

4 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Takk Guðrún og Gunnar.

,,Bjarni?" það er tvennt ólíkt styrkir til ÁKVEÐINNA vísindaverkefna eða ótilgreint sem ég kalla MÚTUFÉ úr sukksjóðum ESB til handa Össuri og co
til að útdeila að geðþjótta til vina og vandamanna og í pílitískan áróður
fyrir ESB-trúboðið. Bendi á að í heil 14 ár hafur reikningshald ESB ekki fengið samþykki endurskoðenda. Svo eru menn að undrast á einhverjum
smá styrkum hér innanlands, þegar til stendur að veita 4.milljörðum
viðtöku í boði Samfylkingarinnar, sem er al spilltastiog þjóðhættulegasti
stjórnmálaflokkur Íslands í dag.

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 4.7.2010 kl. 11:42

5 Smámynd: Guðmundur Karlsson

Það er rekinn stórfelldur áróður fyrir inngöngu í ESB nú þegar. Í hverjum mánuði fær stór hluti landsmanna reikning fyrir verðtryggðum eða gjaldeyrislánum sem hafa hækkað upp úr öllu valdi og fólk sér ekki hvernig það getur nokkurn tímann borgað.

Þessa 4 milljarða þarf að nota til að laga stjórnkerfið svo að svona lagað komi ekki fyrir aftur.

Guðmundur Karlsson, 4.7.2010 kl. 13:52

6 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Nafni. Krónan hefur ALDREI verið vandamálið, heldur vanhæfir stjórnmálamenn og útrásarmafíuósar þeirra. Getum lagað stjórnkerið án
aðstoðar GJÖRSPILLTS stjórnkerfis ESB.  Og allra síst það að þiggja þaðan
mútur!

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 4.7.2010 kl. 16:57

7 Smámynd: Óskar Arnórsson

Góður pistill. ESB er banditasamfélag þar sem mútur eru sjálfsagt mál og hluti af "tekjum" háttsettra innan þess.

Óskar Arnórsson, 4.7.2010 kl. 20:06

8 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Nákvæmlega Óskar. Enda þola ársreikningar ESB ekki skoðun. Hafa verið
ósamþykktir  af endurskoðendum þess til fjölda ára! Þola ekki skoðun,
enda sjóðasukkið þar eftir því!

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 4.7.2010 kl. 21:03

9 Smámynd: Óskar Arnórsson

þessir endlausu skandalar er það sem Svíar eru að fjalla um allt árið. Ég vissi reyndar ekki að reikningar ESB hefðu ekki verið samþykktir í 14 ár! Ég verð bara að leita að þessu og henda mér í umræðuna í Svíþjóð.

Ég held ekki að fólk viti þetta ekki því ég geri bara ráð fyrir að þú hafir betra aðgengi að svona upplýsingum. Veistu nokkuð hvar þetta er að finna á netinu?

Óskar Arnórsson, 4.7.2010 kl. 21:27

10 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Nei Óskar. Þetta hefur oft verið orðað í umræðunni hér af mér vitrari
mönnum um málefni ESB. Alla vega var þetta rætt nokkuð fyrir ári síðan
í fjölmiðlum.

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 4.7.2010 kl. 21:33

11 Smámynd: Óskar Arnórsson

Ég ætla að leita að þessu samt á netinu. jafnvel þó væri vbúið að samþykkja þá núna væri gaman að sjá hvað endurskoðendur notuðu sem rök til að ekki samþykkja...það er svo voðalegt brölt að finna nokkurn skapaðn hlut um ESB. Eins og að leita að einu tré í stórum skógi....þau líta öll eins út.

Óskar Arnórsson, 4.7.2010 kl. 21:37

12 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Þú kannski lætur mig vita. Er líka með meil hér skráð gjk@simnet.is

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 4.7.2010 kl. 21:43

13 Smámynd: Óskar Arnórsson

Geri það ef ég finn eitthvað...

Óskar Arnórsson, 4.7.2010 kl. 22:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband