Færeyingar eru okkar albesta vinarþjóð


   Færeyingar er okkar besta vinarþjóð. Að í uppsiglingu
sé einhver milliríkjadeila milli  okkar og Færeyinga eins
og Esxtra Bladet heldur fram í kvöld er út í hött. Hins
vegar er það umhugsunarvert, að í þau ÖRFÁU skipti
sem forsætisráðherra okkar hittir erlenda ráðamenn,
og nú í opinberri heimssókn, trúlega þeirri fyrstu, skuli
verða SKANDALL! 
mbl.is Danir blása Jenis-málið út
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Það er nú þannig Guðmundur Jónas að þegar klaufaskapur er hafin þá verður honum ekki lokið nema að fjarlægja hann. 

Öfga trú er svo þess eðlis að hún verður ekki svo létt fjarlægð nema með skýrum rökum og gæsku.

Það er svo sorglegt að allt í einu,  þegar Jóhanna er ekkert að gera af sér hér heima og er í heimsókn hjá traustum vinum okkar Færeyingum að þá veldur öfgatrúarmaður vandræðum.   

En öfgamenn hafa allar heimildir til kjánaskapar í Færeyjum líkt og gerist á Íslandi.

Það er þannig að þetta sem við höfum mátt búa við nú í að verða tvö ár er öfgatrú og ef þessi Jenis af Rana gæti sannfært Heilaga Jóhönnu um það að það séu til aðrir guðir en ESB guðir þá væri þessi heimsókn hennar og maka fullkomnuð.

Hrólfur Þ Hraundal, 8.9.2010 kl. 00:40

2 identicon

Sæll hægri Guðmundur,

geturðu nokkuð upplýst okkur fáfróðan vinstrilýðinn hver þessi skandall er, er hann sá að Jóhanna er sú sem hún er, hefur ekkert að fela, eða er það skoðanabróður þinn og gáfumennið Jenis(penis) af Rein sem er að valda SKANDALL með því að vilja ekki setjast að snæðingi með forsætisráðherra okkar vegna kynhneigðar hennar og valda þar með hálfgerðum milliríkjadeilum..?.

Getur verið að pólitískt innræti þitt sé að flækjast fyrir þér í þessum vangaveltum þínum og kannski vanþóknun þín á Jóhönnu sem forsætisráðherra vinstristjórnar...??

Helgi Rúnar Jónsson (IP-tala skráð) 8.9.2010 kl. 00:43

3 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Stormur í fingurbjörg?

Guðmundur Ásgeirsson, 8.9.2010 kl. 01:31

4 Smámynd: Sigurður M Grétarsson

Jóhanna er fllottur fulltrúi íslensku þjóðarinnar. Með þessu vekur hún athygli á lakri stöðu samkynhneigðra í Færeyjum og leggur þannig réttindabaráttu þeirra lið. Vonandi heldur hún áfram á sömu braut í öðrum opinberum heimsóknum til heilla fyrir réttindabaráttu samkynhneigðra í öðrum löndum.

Skandallinn í þessu máli er hjá fordómafulla öfgamanninum Janis av Rein en ekki Jóhönnu.

Sigurður M Grétarsson, 8.9.2010 kl. 20:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband