Alþingi kolfell á prófinu! Kosningar strax!


   Alþingi kolfell á prófinu. Í fyrsta lagi fyrir það að ákæra ekki
ALLA ráðherra Hrunstjórnarinnar. Og í öðru lagi að það skuli
vera bara einn ráðherra hrunstjórnarinnar sem Alþingi ákveður
að skuli sæta ábyrgð. Þegar ljóst er að ALLIR Hrunráðherrarnir
sáta við SAMA  ríkisstjórnarborð  Hrunstjórnarinnar, og komu
þannig meir og minna ALLIR að hruninu og ábyrgðinni á því.
Og í þriðja lagi er það einn  mesti skandall meirihluta Alþingis 
í dag að  styðja enn tvo ráðherra úr  Hrunstjórninni sem ráð-
herra núverandi ríkisstjórnar. Og það sjálfan forsætisráðherra.
Þannig  flækjast Vinstri grænir líka  meiriháttar inn í sukkið og
svínaríið, með stuðningi við slíka Hrunráðherra í dag. Alþingi
kolfell því á prófinu. Rúið öllu trausti og virðingu. Því ber því
að víkja. OG ÞAРTAFARLAUST!
mbl.is Þungbær og erfið niðurstaða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðjón Sigþór Jensson

Geir var auðvitað aðalmaðurinn í ríkisstjórninni hrunárið mikla!

Mosi

Guðjón Sigþór Jensson, 28.9.2010 kl. 21:08

2 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Allt þetta sjónarspil á Alþingi er meiriháttar pólítískur loddaraháttur.
Hannónýtt lið sem allt á að hverfa af braut.

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 28.9.2010 kl. 21:24

3 Smámynd: Elle_

Guðmundur, mér finnst fullkomlega ófært að pólitískt sé valið hvaða menn á að draga fyrir landsdóm.  Og útkoman var fáránleg og rammpólitísk: Einn maður valinn.  Það verður að finna ópólitískari leið til að sakfella menn. 

Elle_, 29.9.2010 kl. 11:16

4 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Þess vegna vildi ég sjá ALLA Hrunráðherranna fyrir Landsdóm Elle.
Fáránlegt að pikka þar einn úr.

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 29.9.2010 kl. 15:20

5 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Nokkuð rétt hjá þér Guðmundur en ég tel að þetta landsdóms fár sé bara en enn skjöldurinn sem núverandi stjórnvöld nota sér til að fá frið með annað og verra. 

Trú á landsdóm tel ég hinsvegar vera í líkingu með önnur heima smíðuð og úrelt trúarbrögð, því brjóti ráðherra af sér þá á að sækja hann til saka á sama hátt og aðra. 

Mér skildist reyndar að landsdómur hafi verið hugsaður til að gera það mögulegt að lostna við vandræða ráðherra, en ekki til að saksækja þá sem þegar væru farnir, vegna þess að það er til kerfi til þess svo sem ég hef áður bent á. .

Hrólfur Þ Hraundal, 29.9.2010 kl. 16:31

6 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Alþingi klúðraði málinu Hrólfur eins og nánast öllu hingað til. Því þurfum við
kosningar STRAX!

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 29.9.2010 kl. 21:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband