Sýnir nauðsýn á íslenzkri leyniþjónustu


    Tilræði til stórfelldra hryðjuverka í Gautaborg sýnir svart
á hvítu hvað öflugar leyniþjónustur eru mikilvægar, og hafa
bjargað þúsundum mannslífa á undanförnum árum. Enda
leggja allar þjóðir heims  áherslu  á  þá nauðsýn að hafa  á
að skipa öflugum leyniþjónustum, bæði til að tryggja öryggi
þegna sinna innanlands og þjóðríkisins utanfrá. Þess vega
er það  með  eindæmum  hvernig  umræðan á Íslandi hefur
verið um þessi mál. Ekki einu sinni greiningardeild má nefna
á nafn, hvað þá íslenzka leyniþjónustu. Og þegar umræðan
fer í þátttöku um að við stefnum að því að koma hér upp lág-
marks öryggissveitum ætlar allt vitlaust að verða, einkum
meðal vinstri-öfgamanna. Sem vilja Ísland berskjaldað  og
varnarlaust, sem er einsdæmi hjá nokkurri þjóð að eiga
slíka andþjóðlega hópa  innan sinna stjórnmála.
mbl.is Grunaðir um hryðjuverkaáform í Gautaborg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Árni Þór Björnsson

Við þurfum ekki leyniþjónustu. Ekki heldur her eða öryggissveitir. Við þurfum réttlæti og frelsi, innsæi og heiðarlega stjórnmálamenn. Ekki leynd og pukur, njósnir og hleranir, ekki handtökur og yfirheyrslur að næturlagi eða hryðjuverkalög. 

Hér er Hjálparsveit Skáta og Flugbjörgunarsveitin ef eitthvað bjátar á. Við höfum vinalega lögreglu ( með undantekningum) . Það þarf ekki meira. Væri bara misnotað af valdhöfum. Haiti norðursins ! Papa Steingrímur doc !

Hverjum dettur í hug vopnuð hryðjuverk á Íslandi ?  Allir vita að  mestu hryðjuverkin hafa nú þegar gerst með leyfi stjórnvalda. Vopnin þurfti ekki með. Bankar , fjárglæframenn og stjórnvöld unnu þessi voðaverk á sofandi þjóð.

Svo allt tal um leyniþjónustu má eiga sig.

Árni Þór Björnsson, 30.10.2010 kl. 21:34

2 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Gjörsamlega óssammál Björn minn. Sá sem hefur ekki einu sinni rænu til að
verja sig og tryggja sitt lágmsrksöryggi, er illa staddur. Nánast glataður.
Enda hefur það verið ær og kýr í málflutningi öfga-vinstrimanna hér.
Varnarlaust Ísland, lítil sem enginn löggæsla, já bara alþjóðlegt viðundur í
öryggis-og varnarmálum.  Þara SVEI slíkum and-þjóðlegum hugsanahætti!
Auðvitað þarf Ísland sterka leyniþjónustu meðan hér er ekki íslezkur her til
varnar landi og þjóð, auk ÖFLUGRA öryggissveita.  Algjörlega lágmark!

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 30.10.2010 kl. 21:50

3 identicon

Guðmundur: En við höfum greiningardeild hjá embætti ríkislögreglustjóra sem sinnir þeim störfum sem leyniþjónustur erlendis sinna. Þar að auki starfrækir lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu Upplýsinga- og eftirlitsdeild, sem sér t.d. um eftirliti með gjaldeyrisviðskiptum, að kortleggja skipulagða glæpastarfsemi, að vinna úr upplýsingum sem berast frá almenningi, samræming osfrv osfrv.

Þar að auki er alþjóðadeild RLS t.d. með sólarhringsvakt alla daga ársins til að vinna úr upplýsingum frá Interpol, Europol osfrv. Þetta allt er bara toppurinn á ísjakanum. Þessi störf eru líka þess eðlis að menn eru ekki beint að auglýsa þau.

Þú og ég mega sofa rótt, það er ekki eins og ekkert sé í gangi. :)

Arngrímur Eiríksson (IP-tala skráð) 31.10.2010 kl. 01:14

4 Smámynd: Óskar Arnórsson

Ég var í Gautaborg þegar þetta uppistand var. Maður getur skilið að stærri þjóðfélög eins og Svíþjóð þurfi á þessu að halda. Ég held að fólki hafi mest þótt nærvera vopnaðra lögreglumanna óþægileg.

Enn Íslandi, einangruð eyja langt í burtu frá öllu sem þrífst á meginlandi er bara þvæla að mælast til að hafa "leyniþjónustu" sem aldrei gæti orðið leynileg hvort sem fólki líkar betur eða verr.

Ef þarf að gera eitthvað "leynilegt" er RLR fullfær um það.

Eins og þessi Arngrímur bendir á hér að ofan er fullt af upplýsingasöfnun í gangi sem er nóg til að afstýra svona málum.

Þetta er bara hasarhugsunarháttur hjá þér Guðmundur, og gagnast engum á Íslandi...

Óskar Arnórsson, 31.10.2010 kl. 15:12

5 identicon

...fyrir utan greiningardeild Tollstjórans og landamæradeild lögreglunar á Suðurnesjum (Áður lögreglunnar á Keflavíkurflugvelli) :) Don't worry be happy!

Arngrímur Eiríksson (IP-tala skráð) 31.10.2010 kl. 21:26

6 Smámynd: Óskar Arnórsson

...meiru mistökin að skipta upp embættunum svona. Mikil vinna sem fór í súgin... :)

Óskar Arnórsson, 31.10.2010 kl. 23:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband