Ríkisstjórnin fallin. Sóknarfæri þjóðhollra hægriafla!


   Fylgið við hina handónýtu vinstristjórn hrynur. Rúin ÖLLU TRAUSTI.
Ræður  alls  ekki við  verkefni sitt. Ríkisstjórn  sem ekki skynjar  sín
endalok með slíkum skýrum skilaboðum, er annað tveggja veruleika-
firrt, eða heilabiluð. Sem þýðir, að þráist hún enn við að sitja, mun
hún senn verða rekin úr stjórnarráðinu, og þá með illu, gerist þess
þörf.

  Athygli vekur hvað lausafylgið er mikið. Sóknarfæri þjóðhollra hægri-
afla utan  hins STÓRLASKAÐA Sjálfstæðisflokks, er því mikil sé rétt  á
málum haldið.  Uppræta þarf hið mikla agaleysi  og  stjórnleysi á Ís-
landi, sem allt of lengi hefur fengið að grassera. - Stjórnlynd öfl  á
þjóðlegum grunni verða að taka við, svo bjarga veðri íslenzkri þjóð-
artilveru. Byggja upp gagnkvæmt traust stjórnvalda og almennings
á Íslandi. Að stjórnað verði í þágu almennings og íslenzkra þjóðar-
hagsmuna. Að hinum andþjóðlegu upplausnar-og niðurrifsöflum á
vinstri-kantinum verði sagt stríð á hendur, og úthýst úr íslenzkum
stjórnmálum. Að trúin á land og þjóð verði í fyrirrúmi, þannig að full-
veldið og þjóðfrelsið verði tryggt, og að íslenzk þjóðmenning haldi
áfram að blómstra og dafna, heimsmenningunni til góða.   

  ÁFRAM ÍSLAND!

  tilvís. HÆGRI GRÆNIR á facebook.
mbl.is Fylgi ríkisstjórnarinnar hrynur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Hvaða áttui við með:

" íslenzk þjóðmenning haldi áfram að blómstra og dafna, heimsmenningunni til góða."

Hvaða sérð þú sérstaklega varðandi Íslenska þjóðmenningu sem sem er örðuvísi en nágranaríkja okkar og kæmi til með að verða heimsmenningu til góða?

Magnús Helgi Björgvinsson, 2.11.2010 kl. 10:27

2 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Tel okkar þjóðmenningu BETUR komið sem frjálst og fullvalda ríki en innan
ERLENDS RÍKIS. Bara nýjasta dæmið nú er að til vandræða horfir með
túlka og þýðendur göngum við þarna inn. Þjóð sem tapar þjóðfrelsi sínu,
sérstaklega örþjóð eins og við, á í mikilli vörn með sína þjóðmenningu.
Mannkynssagagn sýnir það.

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 2.11.2010 kl. 13:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband