Þjóðin treystir á forsetann gegn Icesave-þjóðsvikunum


    Herra Ólafur Ragnar Grímsson forseti átti hrós skilið að
taka fram fyrir hendur hins andþjóðlega meirihluta Alþings
í Icesave-þjóðsvikunum s.l vetur, og vísa þeim í dóm þjóð-
arinnar. Enn eru Icesave-þjóðsvikararnir farnir á kreik  og
stefna að öðrum Icesave-þjóðsvikasamningi, í von um að
hinn sami óþjóðholli meirihluti Alþingis samþykki hann.

  En nú hefur hinn þjóðholli forseti Íslands talað. Lokaorðið 
á að vera hjá þjóðinni. Þjóðin á að segja til um hvort  hún
samþykkir ólögvarðar kröfur nýlenduvelda ESB vegna glæpa
útrásarmafíuósa, sem sjálft regluverk ESB segir íslenzka ríkið
BERI EKKI AÐ GREIÐA. Þannig fær þjóðin tækifæri til að kolfella
í annað sinn þjóðsvikin aftur, voga stjórnvöld sér til að bera
svikin á borð aftur.

  Í kjölfarið, a.m.k þegar nýtt þing hefur verið kosið, yrðu öllum
þeim þjóðsvikurum, sem Icesace vildu samþykkja, kærðir fyrir
Landsdóm.  Þar fremstir færu forsætisráðherra og fjármála-
ráðherra............
mbl.is Lokaorðið hjá kjósendum segir forseti Íslands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Loftur Altice Þorsteinsson

Samkvæmt Stjórnarskránni er forsetinn umboðsmaður almennings. Sem betur fer höfum við núna mann í embætti sem skilur stjórnskipun landsins og stendur því með þjóðinni, gegn innlendum valda-aðli. Nýgjustu yfirlýsingar forsetans gefa fólki vonir um að atlögu Icesave-stjórnarinnar verði hrundið.

 

Ekki má þó sofna á verðinum, því að Sossarnir hafa áform um að veikja fullveldi lýðsins. Ætlun þeirra er að útvatna svo ákvæði Stjórnarskrárinnar, að hún gagnist almenningi ekki til varnar. Þessu verða menn að svara og staðfesta að fullveldið er í höndum almennings, en ekki Alþingis. Ekki má gefa færi á að auka vald Alþingis. Hafna verður þeirri oftúlkun, að þingræði merki meira en að Alþingi ræður lagasetningu og eftirliti með ráðherrunum.

 

Fullveldi merkir endanlegt og ótakmarkað vald til að ráða stjórn landsins. Stjórnskipulag landsins nefnist lýðveldi, vegna þess að fullveldið er hjá lýðnum. Í konungsveldi er fullveldið hjá konungnum. Þeir sem neita að skilja svona einfaldar skilgreiningar ættu að fara í heila-rannsókn. Nokkrar staðreyndir varðandi stjórnskipun Íslands:

 

 
  1. Fullveldið er hjá þjóðinni og þess vegna nefnist stjórnskipunin lýðveldi.
  2. Forsetinn er umboðsmaður þjóðarinnar.
  3. Forsetinn skipar ráðherra og veitir þeim lausn.
  4. Alþingi ræður lagasetningu, innan ramma Stjórnarskrárinnar og hefur eftirlit með störfum ráðherra. Í þessu er þingræðið fólgið og ekkert umfram það. Að ríkisstjórn er þingbundin merkir að hún er bundin af ákvörðum Alþingis, í formi lagasetninga.
  5. Sem fullveldishafi er lýðurinn með endanlegt og ótakmarkað vald til að breyta eða stöðva ákvarðanir Alþingis og ríkisstjórnar. Þjóðin og umboðsmaður hennar forsetinn geta í öllum tilvikum stöðvað lagafrumvörp og aðra gerninga ríkisstjórna, meðal annars ólöglega samninga eins og Icesave-kúgunina.
  6. Til að staðfesta vilja þjóðarinnar, er þjóðaratkvæði eina leiðin. Þetta gildir ekki bara um lög frá Alþingi, heldur ekki síður um breytingar á Stjórnarskránni.
  7. Þjóðin getur ákveðið að gjaldmiðill þjóðarinnar skuli vera alvöru gjaldmiðill, sem merkir að hann er ávísun á alvöru verðmæti. Í þessu samhengi eru einu alvöru verðmætin gull eða alþjóðlegir gjaldmiðlar. Þetta skipulag gjaldmiðilsins verður að festa í Stjórnarskránni.

 

 

Loftur Altice Þorsteinsson, 26.11.2010 kl. 16:36

2 Smámynd: Elís Már Kjartansson

Já Guðmundur ég tek undir þetta hjá þér svo var erkifíflið eða öllu heldur gimbillinn frá Gunnarstöðum að lýsa þekkingarleysi sínu á stjórnmálum er hann talar um að Forseti íslands sem er rödd þjóðarinnar meigi ekki tala svona því gimbillinn segir að hér ráði þingræði en ekki lýðræði. Hann vill meina að Fullveldið sitji hjá þingi og þjóðinni komi þetta bara ekki við. Þarna höfum við það svart á hvítu maðurinn er sífellt að brjóta stjórnarskrána með sínum hálvita gangi er nema von að þetta sé allt í rugli hér þegar ráðherrar sem eru ekkert annað en verkstjórar forseta hagi sér eins og raun ber vitni. Réttast væri að Forsetinn myndi leysa þennan bjána undan ráðherra stóli og leysa upp þingið helst strax til að koma þessu landráða hyski frá völdum. Ef helstu rök þessa fávita séu þau að fóllk kaus hann og þessvegna meigi hann bara haga sér eins og hann vilji óháð því hvað þjóðinni finnist um er bara hinn mesti miskilningur.

Elís Már Kjartansson, 26.11.2010 kl. 19:26

3 Smámynd: Elle_

Það er heilarannsóknarefni út af fyrir sig hvað ICESAVE-liðið ætlar að halda þessari kúgun lengi áfram gegn vilja þeirra sem ætlað er að vera þrælarnir.  Við erum heppinn að hafa forseta sem skilur og veit um vald sitt fyrir hönd þjóðarinnar og NOTAR ÞAÐ. 

Hefði verið nær að Vigdís Finnbogadóttir hefði notað valdið og leyft þjóðinni að kjósa um EES fáráðið.  Nei, ekki hefur heyrst púst í þeirri konu opinberlega, erlendis eða innlendis, gegn ICESAVE-nauðunginni og þó væri ekkert æskilegra en að nota stöðuna sem þekkt persóna. 

Forsetinn fer um heiminn og ver okkur, ekki fær hann glatt að koma í RUV ríkisstjórnarinnar fremur en aðrir hollir landi og þjóð.  RUV notar skattpeninga okkar gegn okkur í rangfærslur ríkisstjórnarflokkanna.  

Elle_, 28.11.2010 kl. 19:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband