Stórt áfall fyrir ríkisstjórnina !


   Hin litla þátttaka í kosningunum til stjórnlagaþings er stórt
áfall fyrir ríkisstjórnina. Sérstaklega forsætisráðherra, en aðal
tilgangur stjórnlagaþings átti að vera skv. ráðabruggi Jóhönnu
og hennar ESB-liði, að úthýsa fullveldisákvæðum hennar svo
Ísland geti gengið í ESB.  Nú hefur fyrirhugað stjórnlagaþing
misst alla vigt vegna litillar kosningaþátttöku, og alveg sér-
staklega fyrir Jóhönnu og ESB-liðið, ef yfirlýsir ESB-andstæðingar
ná þar meirihluta. En það var eingöngu vegna þess sem sá er
þetta skrifar fór og kaus. -

   Stjórnlagaþingskosningarnar voru afar illa skipulagðar, fóru
fram á kotvitlausum tíma með allt of litlum fyrirvara. Auk þess
allt of kostnaðarsamar eins og fjármálum þjóðarinnar er  nú
háttað!

  Enn eitt klúður vinstristjórnar Jóhönnu og Steingríms!

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Björn Birgisson

Guðmundur skrifar:  "....... en aðal
tilgangur stjórnlagaþings átti að vera skv. ráðabruggi Jóhönnu
og hennar ESB-liði, að úthýsa fullveldisákvæðum hennar svo
Ísland geti gengið í ESB."

Hvar kom það fram? Hvað er eiginlega að gerast í kollinum á þér? 

Björn Birgisson, 28.11.2010 kl. 17:14

2 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Björn. Fylgist þú ekki með Evrópuumræðunni? Frumforsenda aðildar Íslands
að ESB er að taka út fullveldisákvæði núverandi stjórnarskrár!

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 28.11.2010 kl. 18:24

3 Smámynd: Björn Birgisson

Kjaftæði!

Björn Birgisson, 28.11.2010 kl. 18:27

4 Smámynd: Elle_

Nákvæmlega, Guðmundur.  Held allir nema EU-sinnar hljóti að sjá hvað pistillinn þinn er sannur.   En það var eingöngu vegna þess sem sá er þetta skrifar fór og kaus.  Sama með mig. 

Elle_, 28.11.2010 kl. 20:04

5 Smámynd: Elle_

Fyrir þann sem segir Guðmund fara með kjaftæði: Núverandi stjórnarskrá leyfir ekki að landið sé sett undir erlent vald.  Það þýðir að Jóhanna og Evrópuliðið verða að eyðileggja núverandi stjórnarskrá til að geta löglega rænt okkur fullveldinu.  Og maður verður að vera ótrúlega bláeygur að skilja ekki plan svika-fylkingarinnar.  Það er ekki Guðmundur sem fer með kjaftæði. 

Elle_, 29.11.2010 kl. 00:12

6 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Takk kærlega Elle!

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 29.11.2010 kl. 00:23

7 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Held Guðmundur að þú sért kominn með samsæri á heilann. Og svo er þetta ekkert áfalla fyrir ríkissjórn. þar sem að breytingar á stjórnarskrá taka ekki gildi fyrr en eftir 2 kosningar. Þetta verður hinsvegar munað þegar sagan verður skoðuð að það voru 37$ þjóðarinnar sem lögðu á sig að velja fólk á lista til að breyta stjórnarskrá. Þeir sem aftur vilja ekki breytingar á henni hefðu getað mætt og valið þar fulltrúa sem vildu ekki breytingar.  Þetta eru löglegar kosningar þó aðeins um 85 þúsund manns hafi kosið af ´220 eða 230 þúsund á kjörskrá.

Stjórnlagaþing verður hvað sem fólki finnst um kjörsókn.

Magnús Helgi Björgvinsson, 29.11.2010 kl. 09:30

8 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Bara minni þig Magnús og Björn á að Valgerðir Bjarnadóttir sagði í viðtali
á Útvarp Sögu á sunnudaginn að breyta VERÐI stjórnarskránni svo að
Ísland geti gengið  í ESB. Enda megin tilgangur ESB-jóhönnu með þessu
stjórnlagaþingi.

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 29.11.2010 kl. 20:00

9 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæll Guðmundur.

Undirliggjandi tilgangur stjórnlagaþingsins af hálfu sitjandi stjórnvalda og forystuflokksins Samfylkingar var vel ljós að mínu viti enda ekki lítill hamagangur við að koma sínum að á þetta þing.

Það verður hins vegar mjög fróðlegt að sjá hvort sá hinn meinti tilgangur skilar sér í fulltrúm eða ekki, ef ekki þá kann svo að vera að sá hinn sami tilgangur hafi snúist í öndverðu sína, með hugsanlegum möguleikum þess að þoka fram nauðsynlegum umbótum s.s þjóðaratkvæðagreiðslum um mál.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 30.11.2010 kl. 02:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband