Íslenzk leyniþjónusta mjög nauðsýnleg !


   Fyrirhuguð  hryðjuverkaárás  í Kaupmannahöfn  sýnir
og sannar gildi  sterkrar  leyniþjónustu. En fyrir tilstuðlan
öflugrar leyniþjónustu víða um heim hefur tekist að bjarga
þúsunda mannslífa.

   Umræðan hérlendis um öryggis-og varnarmál eru í skötu-
líki. Það að ekki megi einu sinni  koma upp leyniþjónustu eins
og tíðkast um allan heim til að tryggja  öryggi íslenzkra ríkis-
borgara og ríkishagsmuna  er óskiljanleg. Þarna sem oftar
hefur Sjálfstæðisflokkurinn brugðist og eftirgefið ábyrgðar-
lausum vinstriöflum allt of mikinn taum í samstarfi við þau.
Ekki síst í ljósi þess að enn hafa Íslendingar ekki komið sér
upp þjóðvarðliði eða her. Þótt ekki væri til annars en að
byggja upp AGA í þessu upplausnarþjóðfélagi!

   Nægir peningar eru til að stórauka löggæslu og önnur
öryggismál, svo og velferðarkerfið. Í dag ausir hin andþjóð-
lega ríkisstjórn vinstrimanna á annan tug milljarða í alls
kyns kjaftæði erlendis, s.s 5-6 milljarða í ölmususjóði ESB
sem engin lagaskylda var fyrir. Sbr. samþykkt meirihluta
Alþingis nú í des.

   Það er ömurlegt að horfa upp á allan aulaháttinn  sem
enn grasserar í íslenzku stjórnkerfi í dag.  
mbl.is Áformuðu hryðjuverkaárás
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: hilmar  jónsson

Alveg bráðnauðsÝnleg...Fáðu Björn Bjarna með þér í málið..

hilmar jónsson, 30.12.2010 kl. 00:47

2 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Alls ekki Hilmar. Björn klikkaði heldur betur í þessu þegar hann var dómsmálaráðherra og hafð þar tækifærin til þess. Bindi miklar vonir við
AÐ NÝ STERK OG SÖNN HÆGRISTJÓRN  komi þessu í verk eftir næstu kosningar.

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 30.12.2010 kl. 00:54

3 identicon

Heill og sæll; Guðmundur Jónas - sem og Hilmar, og aðrir gestir !

Tómt mál; að tala um innlenda leyniþjónustu, meðan Ísland er aðili, að einhverju skuggalegasta hryðjuverka bandalagi, sem NATÓ er, svo sannarlega, Guðmundur minn.

Hins vegar; tek ég undir með þér, nauðsyn innlends þjóðvarðliðs - þó ekki væri; nema til þess að koma á röð og reglu - og aga; sem og, að uppræta valda stétt hvitflibbanna- og blúndu kerlinganna, Guðmundur Jónas.

Hilmar !

Í Guðanna bænum; ekki nefna viðrinið Björn Bjarnason á nafn hér, komist þú hjá því, að nokkru, ágæti drengur.

Með beztu kveðjum; sem áður og fyrri, úr Árnesþingi /

Óskar Helgi 

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 30.12.2010 kl. 00:55

4 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Óskar minn. Hugsaði þessa leyniþjónustu ALMENNT út frá íslenzkum
öryggishagsmunum fyrst og fremst, án tengsla við NATO eða önnur hernaðarbandalög. FRUMSKYLDA sérhvers ríkis er að gæta öryggis þegna
sinna. Númer eitt tvö og þrjú!

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 30.12.2010 kl. 01:01

5 identicon

Eruð þið allveg búnir að gleyma víkingasveitinni og afhverju má ísland ekki bara halda áfram að vera eina svotil herlausa og hlutlausa landið í heiminum? við getum þá allavega gortað okkur af því þegar þriðja heimstyrjöldin hin síðari kemur með tilheyrandi kjarnorkuhvellum um allan heim.

Pétur Daníel (IP-tala skráð) 30.12.2010 kl. 04:53

6 identicon

Við hvað ertu eiginlega hræddur Guðmundur minn?
Ísland er varla á kortinu og mun aldrei verða!

Til hvers þurfum við CIA, DEA, þjóðvarnalið og her??????
Þeir nægja þessir 4 tollverðir upp á Leifstöð og hafa svo sannarlega sannað það í verki!

Og Óskar, villtu röð, reglu og aga í "stæl" Rússa og Asíu þjóða?
Ég varla míg hér standandi né fæ mér bjór án þess að þufa að gefa skírslu til lögreglu.

 Er þetta virkilega það sem þið eruð að biðja um þarna upp á í frjálsræðinu?

Kalli Dan. (IP-tala skráð) 30.12.2010 kl. 05:15

7 Smámynd: Hörður Þórðarson

"En fyrir tilstuðlan öflugrar leyniþjónustu víða um heim hefur tekist að bjarga þúsunda mannslífa."

Margfalt fleirum hefði verið bjargað ef því fé sem er ausið í þessar "leyniþjónustur" hefði verið notað til að vinna að friði og réttlæti í heiminum.  Ef þú heldur að öflug leyniþjónusta tryggi nokkurn skapaðan hlut ert þú illa úti á þekju. Reynslan hefur margsannað að öflug leyniþjónusta tryggir ekkert annað en ótta og spillingu. Líttu bara til þeirra landa þar sem hafa öfluga leyniþjónustu. 

 " Nægir peningar eru til að stórauka löggæslu og önnur
öryggismál, svo og velferðarkerfið"

Hóst hóst...

Hörður Þórðarson, 30.12.2010 kl. 14:18

8 Smámynd: Jón Valur Jensson

"Ef þú heldur að öflug leyniþjónusta tryggi nokkurn skapaðan hlut ert þú illa úti á þekju. Reynslan hefur margsannað að öflug leyniþjónusta tryggir ekkert annað en ótta og spillingu. Líttu bara til þeirra landa þar sem hafa öfluga leyniþjónustu."

Rangt, Hörður. Leyniþjónustur Vesturlanda hafa komið í veg fyrir mörg fjöldamorð öfgamúslima og annarra eldri öfgahópa. Mörg dæmi þess eru frá síðari árum í Bretlandi, Frakklandi (þar var t.d. ætlunin að sprengja upp Eiffelturninn), í Belgíu og nú síðast Danmörku.

Ertu að segja, að þetta hafi kostað ótta og spillingu þar? Hver eru rök þín? Ég hygg, að almenningur í Danmörku sé öruggari að vita, að norrænar leyniþjónustur eru til og vinna vel að málum. Hví þá ekki á Íslandi líka?

Hlutirnir þurfa heldur ekki að vera annaðhvort í ökkla eða eyra. Við Guðm. Jónas erum ekki að biðja um neina alræðiskerfis-leyniþjónustu hingað.

Kalli Dan. er dæmigerður málsvari hins skammsýna Dalakofa-Íslendings – eða þess sem vill í friði frá eftirliti lögreglu fá að stunda sitt pöbbarölt. En göturnar eru öruggari, ef þar er lögreglueftirlit, m.a. hafa eftirlitsmyndavélar nú þegar gert hér mikið gagn til að koma fólki, sem verður fyrir árás, til hjálpar og til að hafa uppi á ódæðismönnum.

Ennfremur þarf að hafa strangt eftirlit með útlendingum, sér í lagi þeim sem grunur leikur á um að komi hingað gagngert til glæpastarfsemi af ýmsu tagi, og segja upp Schengen-samningnum.

Þú stendur þig vel sem fyrri daginn, Guðmundur Jónas. Ég óska þér og þínum gleðilegs árs og friðar, með þökk fyrir samstöðu okkar í mörgum málum.

Jón Valur Jensson, 30.12.2010 kl. 16:30

9 Smámynd: Hörður Þórðarson

"Rangt, Hörður. Leyniþjónustur Vesturlanda hafa komið í veg fyrir mörg fjöldamorð öfgamúslima og annarra eldri öfgahópa. Mörg dæmi þess eru frá síðari árum í Bretlandi, Frakklandi (þar var t.d. ætlunin að sprengja upp Eiffelturninn), í Belgíu og nú síðast Danmörku."

Það sem ég sagði er að öflug leyniþjónusta tryggir ekki nokkurn skapaðan hlut. Þú ert væntanlega nógu vel upplýstur til að ég þurfi ekki að fara að draga fram fjöldan allan af dæmum um það þar sem fólki hefur verið slátrað þrátt fyrir öflugar leyniþjónustur.

Hörður Þórðarson, 30.12.2010 kl. 19:58

10 identicon

Heilir; að nýju !

Kalli Dan !

Ég hygg; að þú hafir átt að geta, sem aðrir, lesið út úr orðum mínum, á þá vegu, sem ég meinti, að sjálfsögðu.

Jón Valur !

Að sjálfsögðu; ætti að vera búið, að segja upp Schengen samningnum, fyrir löngu - svo og, að segja Ísland, frá aðild að hryðjuverka bandalagi nu NATÓ.

Liggur; í augum uppi.

Með; þeim sömu kveðjum - sem fyrri /

Óskar Helgi

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 30.12.2010 kl. 20:08

11 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Takk Jón Valur. Alveg dæmigert um yfirgengilegt ábyrgðarleysi hérlendra
vinstrimanna í öryggis-og varnarmálum. Held að það fyrirfinnst hvergi á byggðu bóli eins ábyrgðarlaus og þjóðfjandsamleg afstaða og hérlendra
vinstrimanna varðandi þjóðaröryggismál Íslendinga. Ekki einu sinni sjálfsagðar FORVARNIR má nefna á nafn, eins og leyniþjónustur SEM ALLAR ÞJÓÐIR heims kappkosta að hafa sem öflugastar á hverjum tíma til  að tryggja öryggi ríkisborgara sinna og þjóðaröryggi. Bara skil ekki svona andþjóðleg viðhorf, enda þurfti TÆRA og SANNA vinstristjórn til að gera eina alvarlegustu atlögu að fullveldi og sjálfstæði Íslands, sbr ESB-umsóknin, og eina vítaverðustu atlögu að kjörum almennings á Íslandi með Icesave-þjóðsvikunum. Þessi óþjóðholla vinstrimennska á Íslandi þarf ítarlegar mannfræðilegar rannsóknir. Því þetta er svo gjörsamlega
sjúkt hugarfar sem hvergi annars staðar finnst. Meir að segja vinstristjórn
Noregs stendur nú fyrir einni mestu uppbyggingu norska hersins frá
upphafi, og þýkir bara hinn sjálfsagðasti hlutur.

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 30.12.2010 kl. 21:27

12 Smámynd: Jón Valur Jensson

Hörður, ég verð hér fyrir vonbrigðum með þig: "Það sem ég sagði er að öflug leyniþjónusta tryggir ekki nokkurn skapaðan hlut. Þú ert væntanlega nógu vel upplýstur til að ég þurfi ekki að fara að draga fram fjöldan allan af dæmum um það þar sem fólki hefur verið slátrað þrátt fyrir öflugar leyniþjónustur."

Ég hefði búizt við meira af þér en þessu. Það verður aldrei unnt að tryggja algert öryggi, en við reynum samt að tryggja það sem bezt, og það eru ótalmörg dæmi um, að komið hefur verið í veg fyrir hryðjuverk. Þú hefur illa fylgzt með fréttum þennan áratug, ef þú veizt ekki af því. Í þeim tilfellum, sem leyniþjónustumönnum hefur tekizt þetta ætlunarverk sitt, geta þeir, sem bjargað var frá kvalafullum dauðdaga, sannarlega verið þakklátir, og þeir eru ÓTALMARGIR, – jafnvel þótt það vitaskuld bjargi ekki lífi annarra, þar sem hryðjuverkamönnum tókst að athafna sig, án þess að vitnaðist um áform þeirra. Það er enginn að neita því hér, að saklausum mönnum hafi verið "slátrað" þrátt fyrir leyniþjónustur og að það eigi eftir að gerast á ný. En góð leyniþjónusta er að sjálfsögðu betri en engin.

Þetta er svo augljóst, að allir eiga að skilja það.

Þakka þér kveðju þína, Óskar Helgi. Við erum sammála um Schengen, en ekki um Norður-Atlantshafsbandalagið.

Þakka þér góð orð, Guðmundur Jónas. Ég er sammála þér í þessu mati á a.m.k. mörgum vinstri mönnum, sem vilja varla neinar forvarnir, ef það tengist lögreglu- eða hermálum.

Já, Norðmenn með sína vinstri stjórn ættu að sýna þessum vinstri mönnum okkar eitthvað. En hafa þeir síðarnefndu ekki bara kosið neikvæðið og ætla að þumbast með það gegnum þykkt og þunnt fram á grafarbakkann? Berja sér svo á brjóst, hvað þeir séu miklir friðarsinnar! En vopnlaus getur friður ekki verið til lengdar, ekki meðan núverandi ásigkomulag manna ríkir, og því breytir enginn maður.

Já, bezt að senda þessa undarlegu vinstri menn í rannsókn vestur á Mela!

Ég vil þó ekki tala illa um hann Hörð hér, þetta er ungur, leitandi maður.

Jón Valur Jensson, 31.12.2010 kl. 01:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband