Átta lögmenn mæla með Icesave-lögleysunni. Skandall !


   Átta nafngreindir  lögmenn stíga á stokk og mæla með
Icesave-lögleysunni, sbr. frétt hér á Mbl.is. Að sjálfsögðu
án neinna lagalegra raka, því þau eru ekki til. Taka þannig
afstöðu með hinum þjóðfjandsömu Icesave-sinnum sem
þessa daga fara hamförum í því að telja þjóðinni trú um að
greiða skuldir glæpamanna, sem  hún  hefur  hvergi komið
nálægt. Glæpamanna, sem þess  utan  hafa  ekki  þurft að
svara til saka, og því siður látnir sæta ábyrgð fyrir glæpi sína.
Glæpi,  sem  hafa  breyst  í  ólögvarðar  kröfur  tveggja óvin-
veittra nýlenduvelda, sem er íslenskum skattgreiðendum svo
gjörsamlega óviðkomandi!

   Forherðing slíka áttmenninga  þótt lögmenn séu í Icesave-
GLÆPNUM gegn þjóðinni mun einfaldlega virka þver öfugt. Því
afstaða þeirra er hreinn og beinn SKANDALL gegn íslenzkum
þjóðarhagsmunum! Þvert á tugi álíta  lögfræðinga og hagfræð-
inga sem nú  mæla alfarið gegn Icesave.-   Sem  gerir  það að
verkum, að þjóðin mun  viðbregðast og  VÍGBÚAST sem aldrei
fyrr  með STÓRU NEI við Icesve þann 9 apríl n.k.

  ÁFRAM ÍSLAND!   N E  I  VIÐ ICESAVE!
    
mbl.is Lýsa stuðningi við Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Júlíus Björnsson

http://www.rte.ie/player/#v=1094103

Rök EU þjóða gegn ríkisábyrgð sem ógnar fullveldinu.

Þeir beina spjótum sínum aðalega að þjóðverjum.  Sumir selja sig ódýrt, lögfræðingar er ekki dómarar.  

Júlíus Björnsson, 17.3.2011 kl. 01:19

2 identicon

Er það ekki makalaust að enginn þessara lögvísu manna lyftir litlaputta til bjargar þjóð sinni, frá klóm þjóðníðinganna og bankaræningjanna á þeirri ögur stundu þegar þjóðin þarfnaðist þeirra mest við að klófesta þá og endurheimta þýfið.

Heldur rís nú upp skari þeirra, og vill að þjóðin segi sig frá heiðarlegum réttarhöldum til að fá úr skorið um sök sína og ófæddra barna sinna.

Svei þessum lítilmennum.

Arnór Valdimarsson (IP-tala skráð) 17.3.2011 kl. 01:22

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Hvað ætli þeir hafi fengið í vasann sinn fyrir þetta framtak. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 17.3.2011 kl. 11:59

4 Smámynd: Elle_

Yfirlýsingin er eitt það ógeðslegasta sem ég hef lesið eftir lögmenn.  

Elle_, 18.3.2011 kl. 15:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband