Burt burt með Schengen-ruglið!


   Og nú eru Frakkar farnir að kvarta undan hinu hripleka
landamærafyrirbæri Schengen. Sem heldur ekki vatni, enda
hefur flóðgátt flóttamanna frá Túnis og Líbiu opnast, svo
enginn ræður við eitt eða  neitt lengur. ESB galopið fyrir
flóðinu og þar á meðal Ísland með Schengen-aðildinni.

   Enn eitt dæmið um stórgallað ESB-regluverk, sem mis-
vitrir stjórnmálamenn á Íslandi álpuðust til að flækja Ís-
landi inní. Sem var meiriháttar brandari, þar sem Ísland
er eyja úti á miðju Atlantshafi. Sem eyþjóðirnar  Bretar
og Írar duttu ekki í hug að tengjast, svo augljóst blasti
fáránleiki þess við þeim sem eyþjóðir. Sem komið er nú á
daginn. En því miður höfðu hálfvitarnir í íslenzkum stjórn-
málum meirihluta til að þröngva þessu ofur-rugli fram.
Íslandi til meiriháttar ógagns og   óþurftar.

   Krafa dagsins er því. BURT MEÐ SCHENGEN-RUGLIÐ á
Íslandi!  Hverfum aftur til okkar EIGIN landamæraeftir-
lits, eins og flestir aðilar hvetja nú til sem framfylgja
þessu RUGL-SCHENGENFYRIRBÆRI á Íslandi. Sem þar
að auki kostar okkur offjár í rekstri.

  BURT MEÐ SCHENGEN!  BURT MEÐ ESB-UMSÓKNINA!

  Tilvís. HÆGRI GRÆNIR á facebook!
mbl.is Krefjast endurskoðunar Schengen
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Alveg sammála burt með þetta hræðilega SCHENGEN hvað er það að gera fyrir okkur sem vegur uppá móti því sem það er að gera okkur.Og burt með ESB umsóknina.Og í leiðinni mætti ég biðja um að þessi hræðilega ríkisstjórn færi líka í burt þá væri þetta fullkomið. 

Brynja S. (IP-tala skráð) 23.4.2011 kl. 01:37

2 Smámynd: Gunnar Heiðarsson

Sammála hverju orði hjá þér, Guðmundur!

Annars, gleðilegt sumar!

Gunnar Heiðarsson, 23.4.2011 kl. 02:06

3 identicon

Hvernig væri bara að loka sig inni í skáp?

Stefán Júlíusson (IP-tala skráð) 23.4.2011 kl. 05:53

4 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Sé að þú óskar eftir á bloggi þínu Stefán að menn séu málefnalegir,
annars sé þeim hent út.  Hér færir þú engin rök fyrir þínum  dylgjum,
enda blasa staðreyndirnar við. Við í Schengin langt uti á Atlantshafi,
þegar Bretar og Írar sem eyþjóðir vilja það alls ekki.
Ef einhver er lokaður inní skáp umluktur myrkri sýnist mér það vera þú
Stefán minn.

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 23.4.2011 kl. 07:51

5 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Takk Gunnar og gleðilegt sumar!

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 23.4.2011 kl. 07:52

6 identicon

ESB er ekki galopið fyrir flótamenn.  Þeir koma yfir með litlum bátum.  Þá taka Ítalir eða Maltverjar við þeim.  Þegar þeir eru mættir þar, þá mega þeir ekki fara til annara landa innan ESB.  Flótamenn mega aðeins vera í því landi sem þeir upprunalega komu til.  

Það merkir að þeir mega ekki fara frá ítalíu eða Möltu.  Ef þú skoðar tölur yfir flóttamenn, þá eru nú þegar miklu fleiri flóttamenn í öðrum ríkjum ESB.

Það er ekki hægt að stöðva þessa flóttamenn því það er ekki hægt að byggja girðingu í sjónum. 

Flóttamenn eru ekki glæpamenn.  Það verður aldrei hægt að koma í veg fyrir að flóttamenn eða glæpamenn fari til annara ríkja.

Schengen veitir okkur venjulegum borgurum mikið frelsi.  Í dag stekk í upp í lest og skýst til Póllands til að kaupa Prins póló.  Allt án einhverjar landamæragæslu og án þess að þurfa að sýna hversu mörg Prins Póló ég er með.

Stefán Júlíusson (IP-tala skráð) 23.4.2011 kl. 08:08

7 Smámynd: Sandy

Ég er alveg sammála þér Guðmundur. Þetta sýnir bara að það er varasamt að taka upp reglur ESB og kokgleypa þær án ýtarlegrar skoðunar. En þar sem við erum ekki gengin í ESB og ríkisstjórnin ekki búin að troða okkur þar inn í leyfisleysi þá er spurningin hvort við getum ekki bara farið úr Schengen-samstarfinu og tekið upp okkar gamla landamæraeftirlyt?

                                                                       Gleðilega páska!

Sandy, 23.4.2011 kl. 08:22

8 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Stefán. Þegar eitt helsta ESB ríkið telur Schengen það stórgallað að endurskoðunar er þörf, þá er eitthvað míkið að. Já bara gott hjá þér
að geta ferðast til Póllands fyrirhafnarlítið til að kaupa Prins póló, enda
þú búsettur á meginlandinu. En fyrir okkur úti á miðju Atlantshafi skiptir
þetta engu máli. Nema þá það að halda uppi rándyrri landamæravörslu fyrir
ESB. Og hvers vegna skulu ekki SÖMU forsendur gilda um okkur að hafna
Schengen af öryggis-og hagkvæmnisástæðum eins og eyþjóðirnar Breta
og  Íra? En málið er að þetta Schengenrugl var barnfóstur Halldórs Ásgrímssonar fyrrum utanríkisráðherra og ESB-sinna. Einn liður í því að
flækja okkur sem mest í regluverk ESB svo auðveldað yrði að troða okkur
þangað inn. Engin rök önnur. Enda kerfið rándýrt fyrir okkur, hefur
stóraukið ferðir allskyns erlends glæpaliðs inn í landið, enda eru flestir
sem vinna við þetta rugl-kerfi alfarið á móti því Stefán.

Takk fyrir þitt innlegg hér Sandy!

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 23.4.2011 kl. 09:47

9 identicon

http://www.utanthingsstjorn.is/

anna (IP-tala skráð) 23.4.2011 kl. 20:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband