Sósíaldemókratar allra flokka sameinist.


   Hvatning Jóhönnu Sigurðardóttir formanns Samfylkingarinnar á
nýafstöðnu flokksráðsþingi, um að sósíaldemókratar allra flokka
sameinist í einum flokki, kemur ekki á óvar. Allra síst kemur það
á óvart að hún skuli  sérstaklega nefna stóra hópa innan Sjálf-
stæðisflokksins og Framsóknar. En innan Sjálfstæðisflokksins
hefur sósíaldemókrataisminn fengið að grassera til margra ára-
tuga, og raunar einnig innan Framsóknar.

   Réttilega bendir Jóhanna á að innan Sjálfstæðisflokksins  og
Framsóknar væru stórir hópar er ættu samleið með sósíaldemó-
krötunum í Samfylkingunni. Alveg sérstaklega í Evrópumálum
og upptöku evru. Sagði Jóhanna reiðbúin til að beita sér fyrir
breyttu skipulagi, nýju nafni og nýrri forystu í hinum nýja sósíal-
demókrataíska flokki til að sameiningin gæti  orðið að veruleika

   Vert er að óska sósíaldemókrötum allra flokka til hamingju með
þetta sameiningartilboð krataleiðtogans. Þetta gæti einmitt orðið
stór liður í allsherjar uppstokkun í íslenzkum stjórnmálum, og
lagt skýrar línur í þeim.

    Hvað okkur sem aðhyllumst þjóðhyggju og borgaraleg viðhorf
og gildi  á þjóðlegum nótum, hlýtur allt slíkt að verða enn meiri
hvatning til að stórefla þann pólitíska vettvang, sem fyrir  þau
sjónarmið standa.  Með nýju framboði! 

     Uppstokkunin á hægri kanti íslenzkra stjórnmála blasir því við!
Ekki síst þar sem ímynd Sjálfstæðisflokksins og trúverðugleiki
hefur beðið alvarlegt skipbrot. Auk Framsóknar!

  Tilvís. HÆGRI GRÆNIR á facebook.......

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband