Yfirgengileg hræsni Jóhönnu !


    Jóhanna Sig. forsætisráðherra  hefur skipað nefnd um
stefnumörkun ríkisins í auðlindamálum. Áður hafði þessi
sama Jóhanna beitt sér fyrir skipan umboðslaus stjórn-
lagaráðs til breytingar á stjórnarskrá. Allt er þetta yfir-
gengileg hræsni! Því að á sama tíma vill þessi Jóhanna
troða Íslandi  inní ESB. Við það víkur íslenzka stjórnar-
skráin fyrir þeirri er ESB stjórnast af, og helsta auðlind
Íslendinga, fiskistofnanir, fara undir yfirþjóðlegt vald í
Brussel, og  erlendir aðilar fá  ótakmarkað  leyfi  til  að
fjárfesta í þeim gegnum eignarhald í íslenzkum útgerð-
um.

   Er hægt að komast lengra í hræsninni? Og gera þá er
skipa þessar nefndir nánast að fíflum!  - Og það suma
þeirra af hrekklausum aulum að auki, því þeir létu ESB-
liðið plata sig og samþykktu fullveldisframsal í stjórnar-
skrá. Til að Ísland gæti gerst aðili að ESB. Þvert á þeirra
fyrri yfirlýsingar og gegn ályktun þjóðfundar. Og nú á að
bæta enn einni syndarnefndinni við!

    HRÆSNIN ER  A L G J Ö R !

   P.s. Veit ekki þeesi Jóhanna enn út á hvað ESB gengur?
mbl.is Auðlindanefnd skipuð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Elíasson

Því miður og það hefur verið ljóst lengi að Heilög Jóhanna gengur ekki á "öllum"..................  

Jóhann Elíasson, 9.7.2011 kl. 15:19

2 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Hún höktir Jóhann en skröltir þó vegna handónýtar stjórnarandstöðu!

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 9.7.2011 kl. 19:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband