Sósíaldemókratar óróast í Framsókn


   Svo virðist að hinn sósíaldemókrataíski armur Framsóknar
sé farinn að óróast eftir yfirlýsingar formanns Framsóknar um
að aðildarumsókn að ESB skuli taka til baka. Nokkrir nafnkunnir
ESB-sinnaðir sósíaldemókratar innan Framsóknar hafa þegar
sagt skilið við flokkinn, og ekki mun koma á óvart að einn  af
aðal-sósíaldemókrötunum í Framsókn, þingmaðurinn Guðmund-
ur Steingrímsson, yfirgæfi flokkinn einnig. Jafnvel fleiri úr þing-
liðinu eins og hin ESB-sinnaða Siv Friðleifsdóttir. Sem einnig
kemur úr hinum sósíaldemókrataíska armi flokksins.

    Miklar væringar hafa verið innan Framsóknar yfir  mjög
langt tímabil, ekki síst eftir að Framsókn lét sig hverfa inni í
hræðslubandalag vinstrisinna, R-listann, undir pilsfaldri Ingi-
bjargar Sólrúnu Gísladóttir. Við það hefur fylgi við flokkinn
nánast hrunið á höfuðborgarsvæðinu. ESB daður Halldórs
Ásgrímssonar klauf svo flokkinn endanlega, sem hefur til
þessa ekki tekist að skilgreina sig upp á nýtt með nýrri
pólitískri ímynd. Því má segja að átökin í Framsókn haldi
enn áfram með ófyrirséðum afleiðingum fyrir flokkinn.

   Athygli vekur að sami órói er ekki meðal sósíaldemókrat-
anna í Sjálfstæðisflokknum. Ekki einu sinni í þingliðinu undir
forystu Þorgerðar Katrínar. - Þeir virðast þar bíða færis eins
og oft áður, sbr. við myndun hrunstjórnarinnar og innleið-
ingu ESB-regluverksins sem  gerði hrunið mikla tæknilega
framkvæmalegt! Illu heilli fyrir land og þjóð.............. 

  


mbl.is Tilkynnir ákvörðun sína á morgun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband