Fjórflokknum hafnað! Kallað á nýja flokka!


    Algjört vantraust kemur fram á Fjórflokkinn skv. könnun
Stöðvar 2 og Fréttablaðsins. Tæp 60% kjósenda neita að
styðja Fjórflokkinn og kallar á ný framboð og nýja flokka.

   Þetta eru mjög ánægjuleg tíðindi og bindir vonir við að í
næstu kosningum verði þáttarskil í íslenzkum stjórnmálum.
Uppstokkun og algjör endurnýjun. Enda hefur stuðningur
við Alþingi og virðing þess aldrei verið minni en nú. 

   Á hægri kanti íslenzkra stjórnmála þarf að koma inn algjört
nýtt pólitísk blóð. ALVÖRU þjóðholt hægrisinnað ÞJÓÐHYGGJU-
AFL.  Þar sem kjósendur geta 100% treyst að staðið verði
við ÖLL BORGARALEG GILDI OG VIÐHORF, ÍSLENZKIR ÞJÓÐAR-
HAGSMUNIR TRYGGÐIR OG STAÐIÐ VERÐI VÖRÐUR UM FULL-
VELDI OG ÞJÓÐFRELSI ÞJÓÐARINNAR!  Stjórnmálaafl sem
hægt verði að treysta á að  muni ALDREI vinna til vinstri,
sbr. Sjálfstæðisflokkurinn og sósíaldemókratar hans gegnum
árin og áratugina!  Með hörmulegum afleiðingum eins og ótal
dæmi sanna. 

    
mbl.is Sjálfstæðisflokkurinn stærstur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Þorsteinsson

Svo lengi sem ég man koma fram menn ganga með þingmann í maganum. Þeir skrifa í blöð og sumir í boggið. Til þess að komast að verða þeir að vera betri en þeir sem fyrir eru. Setja fram stefnumótun og hugmyndafræði. Það hefur þú ekki gert enn. Þangað til verður maður bara að vona að bókhaldið gangi vel.

Sigurður Þorsteinsson, 10.12.2011 kl. 01:19

2 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Bara ALRANGT hjá þér Sigurður. Er flokksbundinn í hinum nýja hægriflokki
HÆGRI GRÆNUM sem heldur betur hefur útskýrt stefnumál sín og boðað
framboð í öllum kjördæmum landsins!  Þú bara fylgist ekki með! Og bókhaldið gengur mjög vel í samræmi við það! Bara takk fyrir það!

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 10.12.2011 kl. 02:43

3 Smámynd: Guðjón Sigþór Jensson

Ekki er mér kunnug aðferðafræði Fréttablaðsins við skoðanakannanir en reynslan hefur sýnt að fylgi Sjálfstæðisflokksins í könnunum er umtalsvert meira en í raunveruleikanum: þegar talið er upp úr kjörkössunum. Það bendir til að e-ð sé ekki rétt í aðferð Fréttablaðsins.

Við skulum athuga að aðeins 44% svara. Það er með því lægsta þátttökuhlutfalli sem eg hefi séð. Hvaða skoðun hefur meirihlutinn, þ.e. 56%?

Svona skoðanakönnun er því einskisvirði og hefur ekkert að segja.

Varðandi þingmenn þá held eg að því miður er fjölgandi því fólki sem ekkert erindi raunverulegt á í þessa samkomu. Hvað á að gera t.d. við trúði? Eiga þeir að sækja atvinnu inn í pólitíkina?

Guðjón Sigþór Jensson, 10.12.2011 kl. 20:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband