Hrein Brussel-stjórn tekin við á Íslandi


   Mikið er alræðisvald Brusselvaldsins orðið. Skiptir ekki
bara um ríkisstjórnir innan ESB til að þóknast henni og
gera þær undirgefnari alræðinu í Brussel. Heldur blandar
hún sér  í  innanríkismál  umsóknarríkisins  Íslands  og
þröngvar fram  nýja  ríkisstjórn henni að skapi.  Og allt
virðist þetta geta gerst vegna yfirgengilegs aulaháttar
stórhluta þingmanna sem þó segjast sumir í öðru orðinu
vera á móti aðild Íslands að ESB. En lempast niður svo í
hvert sinn sem Brussel sýnir klærnar og yfirganginn. 

   Aumkunarvert er því að horfa upp á nýja fórnarlambið
ef fórnarlamb skal kalla, Jón Bjarnason. Því þrátt fyrir að
segja að hann sé látin víkja vegna ESB-andstöðu sinnar,
ætlar hann  samt  að kyssa  á vöndinn  og  halda áfram
stuðningi  sínum  við  hina  nýju Brussel-stjórn. Já  svo
sannarlega eru vegir kommúnista órannsakanlegir þegar 
kemur að þjóðfrelsismálum og þjóðlegum hagsmunum.
Sbr. þjóðarsvik  þeirra  í  Icesave sem  títtnefndur  Jón
studdi með ráðum og dáð. 

   Brussel-stjórn á Íslandi í andstöðu við þjóðina gengur
ekki.  Hún skal frá hið snarasta hvað sem það kostar!  Í
sjálfsvörn þjóðar fyrir frelsi sínu og fullveldi eru engin
takmörk sett!  Allra síst þegar stríðhanska hefur  verið
kastað! Og það með afgerandi hætti og nú hefur gerst!
mbl.is Látinn víkja vegna ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Eftir að hafa lesið blogg Ómars Geirssonar,er ég farin að halda að þetta sé biðleikur,þau eru lúmskari en skrattinn.

Helga Kristjánsdóttir, 31.12.2011 kl. 01:26

2 Smámynd: Sigurbjörg Sigurðardóttir

Einángra Island er efst í þínum huga.

Sigurbjörg Sigurðardóttir, 31.12.2011 kl. 13:17

3 Smámynd: Elle_

Einangra hvað af Íslandi?  Og frá hverju??  Skilurðu ekki hvað er í gangi með leppstjórn Jóhönnu og yfirgangsveldið í Brussel?  Getur Guðmundur ekki eins vel fullyrt að ´efst í þínum huga´ sé einangrun frá yfir 90% heimsins?  

Elle_, 1.1.2012 kl. 01:48

4 Smámynd: Elle_

Guðmundur, ég held ekki að Jón muni styðja stjórnina.  Og held hann hafi haldist í þessari ömurlegu stjórn vegna andstöðu hans við fullveldisafsalið, þrátt fyrir ICESAVE. 

Elle_, 1.1.2012 kl. 01:59

5 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Takk Helga og Elle!  Jón er bara tækifærissinnaður kommúnisti. Enda studdi
Svavars-Icesave-landráðasamninginn með ráðum og dáð. Sem hefði gert
Ísland endanlega GJALDÞROTA fyrir ári síðan!

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 3.1.2012 kl. 20:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband