Hreyfingin sósíaldemókrataísk hreyfing


   Hvenær ætlar hin svokallaða Hreyfing að koma út úr skápnum?  
Opinberlega! Sem sósíaldemókrataísk hreyfing, tilbúin til að verja
hina illræmdu vinstristjórn frá falli  fram í  rauðan dauðann. Svo að
takast megi m.a að troða Íslandi inni í ESB og ESB-væða stjórnar-
skrána.

   Þátttaka Hreyfingarinnar í svokallaðri búsáhalda-byltingu var
skrípaleikurinn einn! Eins og búsáhaldabyltingin sjálf. Enda hefur
hún fyrir löngu étið börnin sín. Eftir stendur afdankað og ráðvillt
sósíaldemókrataískt lið. Afhjúpað frammi fyrir alþjóð
.
   Hjákátlegast er þó ef Frjálslyndi-flokkurinn sálugi, auk  hins
misskilda Þjóðarflokks, einhverra spekinga úr hinu ólöglega
stjórnlagaráði og fl, hyggjast ganga í sameiginlega framboðs-
sæng með þessu deyjandi útibúi Samfylkingarinnar.

   Já! Hringavitleysan í íslenzkum stjórnmálum ríður ekki við ein-
teyming!    
mbl.is Segir Hreyfinguna sitja hjá um vantraust
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband