Hyldýpi milli þings og þjóðar! Kosninga krafist!


   Hyldýpi er nú milli þings og þjóðar. Það sannaðist í gær er
Alþingi kom í veg fyrir aðkomu þjóðarinnar að ESB-aðlögunar-
ferlinu. Brussel-konan Jóhanna tókst að smala saman villi-
köttunum í Vinstri grænum og apaköttunum í Hreyfingunni
til að þóknast  Brusselvaldinu.  Með  stækkunarstjóra ESB
sér  til  halds og trausts í gær og í dag. Því  enn á eftir að
þröngva IPA-aðlögunarstyrkjum ESB gegnum þingið  til að
innsigla  og fullkomna aðlögunarferlið.  Og þá með hjálp
villikatta Jóhönnu..

   Allt er þetta gert á móti stórum meirihluta þjóðarinnar.
Þjóðarsvik kommúnista í VG eiga ekki að koma að óvart.
En að apakettirnir í Hreyfingunni skulu þarna hjálpa til
er athyglisvert. En armur sósíaldemókrata úr Sjálfstæðis-
flokki og Framsóknar var til staðar að sjálfsögðu.

   ESB-liðið ætlar augsjánlega að þröngva aðlögunarferlinu
að ESB með ofbeldi, yfirgangi og blekkingum upp á þjóð-
ina, og nýtur til þess ótakmarkaðs stuðnings Brussel-vald-
sins.  Gegn slíku vítaverðum afskiptum ESB  af innanríkis-
málum Íslands VERÐA nú ALLIR ÞJÓÐFRELSISSINNAR  að
bregðast af MIKILLI HÖRKU! Því í þjóðfrelsisstríði, og ekki
síst smáþjóðar, eru fá eða engin takmörk sett í því.

  Hlálegt að tálbeitan nú er afmá gjaldeyrishafta með
aðkomu ESB! Þegar fyrirliggur meiriháttar lausn á þeim
vanda innan árs, sbr. hugmyndir Guðm. Franklíns  leið-
toga HÆGRI GRÆNNA á www.xg.is

   www.kjosendur.is  Krefjumst kosninga STRAX!

   www.olafurogdorrit.is  Stöndum vorð um forseta vor!

   www.xg.is gegn ESB-aðild, Schengen og EES.

   www.afram-island.is  Verjum fullveldið og sjálfstæðið.
mbl.is Jóhanna fundaði með Füle
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sandy

Sammála, kosningar strax!!!!!!! Vona að forseti skrifi ekki undir þessi landráð, því hvað er þetta annað en landráð? Þessi ríkisstjórn nýtur ekki trausts út í þjóðfélaginu.

Sandy, 25.5.2012 kl. 07:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband