Sjalfstæðismenn út og suður í ESB-málum! Ekki Hægri grænir!


   Og enn hrópar hin sósíaldemókrataíska deild innan þingflokks
Sjálfstæðisflokksins að fráleitt sé að hætta aðildarferli Íslands
að ESB. Þrátt fyrir málaferli í Icesave gegn Íslandi, hótanir um
viðskiptaþvinganir í makríldeilunni, og þrátt fyrir að sjálft ESB
sé að verða ein rjúkandi rúst með handónýta evru!

   Já mikið ótrúlega sterk tök hafa hin sósíaldemókrataísku öfl
innan Sjálfstæðisflokksins  í  flokknum. Sbr. leiðtogi  þeirra  Þor-
gerður Katrín Gunnarsdóttir sem lætur nú ljós sitt skína á aðal-
fundi svokallaðra Sjálfstæðra Evrópumanna. Sjálfur fyrrverandi
vara-formaður  Sjálfstæðisflokksins.  En  formaður Sjálfstæðra
Evrópumanna kemur einmitt úr Sjálfstæðisflokknum, Benedikt
Jóhannesson. Og fyrrverandi formaður flokksins Þorsteinn Páls-
son situr sem kunnugt er í sjálfri  aðlögunarnefndinni  um aðild 
Íslands að ESB. Og fyrir skömmu skaffaði Sjálfstæðisflokkurinn
flokkskonu sína Sigurlaugu Önnu Jóhannesdóttir í framkvæmda-
stöðu hjá ´,,Já Ísland" sem berst fyrir aðild Íslands að ESB.

   Já ótrúlega virkur virðist hinn sósíaldemókrataíski armur  vera
í Sjálfstæðisflokknum.  Nú í aðdragandi kosninga. Sem hlýtur að
vera Icesave-forystu flokksins þóknanleg,  sem studdi leynt og
ljóst Þóru Arnórsdóttir forsetaframbjóðenda ESB-trúboðsins í
forsetakosningunum í sumar.

   Nei Sjálfstæðisflokknum er ALLS EKKI TREYSTANDI í Evrópu-
málum. Ekki frekar en við stjórn efnahagsmála, Hrunflokkurinn
sjálfur!!!

    Því er það gott að nú geta þjóðhollir borgarasinnar snúið sér að
hinu nýja  alvöru-framboði til hægri,  HÆGRI GRÆNUM!  Og hvílt
hinn sósíaldemókrataíska Sjálfstæðisflokk. Sem allt of lengi hefur
fengið að leika tveim skjöldum á hægrikanti íslenzkra stjórnmála! 

  ÁFRAM HÆGRI GRÆNIR! www.xg.is  www.afram-island/magasin.pdf

mbl.is Telur fráleitt að hætta aðildarviðræðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband