Nú er tækifæri fyrir Hægri græna, flokk fólksins


    Nú þegar skýrast framboðsmálin hjá Sjálfstæðisflokknum, er ljóst
að full þörf er á hægrisinnuðum framfaraflokki hægra megin við Sjálf-
stæðisflokkinn. Ljóst er að fólkið í landinu er einfaldlega ekki búið að
fyrirgefa Sjálfstæðisflokknum fyrir eitt mesta efnahagshrun Íslands-
sögunar. Enda sýnir léleg þátttaka í prófkjörum Sjálfstæðisflokksins
það, þar sem þau hafa verið haldin.

   Formaður Sjálfstæðisflokksins fékk í raun reisupassan í prófkjöri
Sjálfstæðisflokksins í SV-kjördæmi, meðan yfirlýstur ESB-sinni fékk
glimrandi kosningu í annað sætið. Skandall!

   Þótt Hanna Birna hafi sigrað í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykja-
vík í lélegri kjörsókn, er það ekkert til að hrópa húrra fyrir. Manneskjan
sem bókstaflega rústaði fylgi flokksins í síðustu borgarstjórnarkosning-
um, vegna lélegrar stjórnvisku enda makkandi  stöðugt við vinstriöflin
í borginni, sem  kom  henni  og flokki svo í koll. Sem lofar ekki góðu um
framhaldið þitt  á landsvísu, Hanna Birna!

  Það a.m.k 20- 30 % af 10 efstu frambjóðendum í prófkjöri Sjálfstæðis-
flokksins skulu vera eindregnir ESB-sinnar utan þeirra sem hálfvolgir
eru veldur ugg. Í raun SKANDALL!

   Enn og aftur hefur sannast hversu hin sósíaldemókrataísku öfl eru
sterk innan Sjálfstæðisflokksins, sem stöðugt afleiða hann frá upphaf-
legri borgaralegri skyldu sinni. -  Gildum EINSTAKLINGSFRELSIS  og
ÞJÓÐFRELSIS!!!

   Haldi HÆGRI GRÆNIR, flokkur fóksins nú vel á spöðunum og bjóði
fram í öllum kjördæmum sterku og heiðarlegu fólki, eru tækifærin fyrir
flokkinn mörg á hægri kanti íslenzkra stjórnmála í dag.

     p.s!

     Formaður flokksins, Guðmundur Franklín Jónsson verður í spjalli á
Sprengisandi á Bylgjunni í dag. Hvet alla til að hlusta!

    www.xg.is www.afram-island.is/magasin.pdf  

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband