Bjarni er fullveldissinni en ekki kommúnisti.Yfirgaf því VG. Flott!


   Bjarni Harðarson bóksali er gengin úr Vinstri grænum. Óska
honum til hamingju! En báðir vorum við í denn pólitískir sam-
herjar. Fyrst í Framsóknarflokknum meðan hann stóð undir
nafni sem umbótasinnaður þjóðhyggjuflokkur. Sögðum skilið
við hann er ESB-óværan var þar orðin óþolandi. Áttum aftur
samleið í Samtökum Fullveldissinna. En strax eftir að Bjarni
gekk til liðs við Vinstri græna, skildu leiðir. -  Við þau leiðaskil
mun sá sem  þetta  ritar  hafa reiðst  mjög og látið sterk orð
falla  í garð Bjarna auk  aðgerða á bloggi og facebook sem hér
verða ekki tíunduð. En nú hefur Bjarni sem sagt yfirgefið   VG
og er það vel! Og enn og aftur til hamingju með það Bjarni
sæll!

   Því Bjarni Harðarson var og er einlægur FULLVELDIS- og ÞJÓÐ-
FRELSISSINNI, en  EKKI kommúnisti. Þess vegna hefur hann nú
yfirgefið Vinstri græna. Forvera hérlendra kommúnista. Komist
að raun um að í þeim herbúðum er eðli málsins samkvæmt ekki
að finna stuðning við fullveldi og þjóðfrelsi Íslendinga þegar önnur
flokkspólitísk mál hafa forgang.  Hinir öfga-alþjóðasinnuðu sósíal-
istar hafa ætið reynst þjóðhættulegir eins og sósíaldemókratarnir
þegar sjálfstæði þjóða og þjóðleg gildi og viðhorf eru annars vegar.

   Að lokum er vert að benda Bjarna ásamt öllum sönnum fullveldis-
sinnum á HÆGRI GRÆNA, flokk fólksins. Sem stofnaður var á þeim
helga stað Þingvöllum á þeim merka degi 17 júní árið 2010. Og með
flokksönginn ,,Hver á sér fegra föðurland" íslenzkt ættjarðarljóð ort
í tilefni  af lýðveldisstofnuninni 1944.  Sem segir jú margt um flokk
HÆGRI GRÆNA, flokk fólksins....

   Já til hamingju Bjarni minn! Full pólitísk sáttur við þig í dag! Þú
ert sannur við þína pólitík! Tekk minn Tírolahatt ofan fyrir öllum
slíkum!



    www.xg.is  www.afram-island.is/magasin.pdf


mbl.is Bjarni farinn úr VG
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband