Auðvitað á lögreglan að vera öllum vopnum búin!


  Herlaust land verður a.m.k að hafa öfluga lögreglu. Bæði
öflugt fjölmennt varalið, vel vopnum búna víkingasveit, og
að sjálfsögðu aðgang að vopnum í lögreglubílum, eins  og
yfirlögregluþjónn hjá embætti ríkislögreglustjóra vill.

  Þess utan á lögreglan að hafa víðtækar forvarnarheimildir.
Ísland eins og ÖLL önnur ríki þarf að setja á stofn leyni-
þjónustu, til að annast lágmarks innra-sem ytra öryggis
íslenzka lýðveldisins. Ekki síst það sem Ísland hefur ekki
komið sér upp her.  En leyniþjónustur um heim allan hafa
komið  í  veg fyrir  fjölda  hryðjuverka  ódæðismanna og 
bjargað tugþúsunda mannslífa. Ekki síst fyrir alþjóðlega 
SAMVINNU slíkra leyniþjónustustofnanna, sem Ísland illu
heilli á ekki yfir að ráða í dag.

   Sérhvert ríki ber heillög skylda til að verja þegna viðkom-
andi ríkis frá innri-og utanaðkomandi vá.

    Nægir peningar eru til að stórefla lögregluna á Íslandi,
svo og Landhelgisgæslu. Til þess þarf einfaldlega að gjör-
breyta forgangsröðun hinnar þjóðfjandasömu vinstristjórnar
í ríkisfjármálum.

   Vítavert ábyrgðarleysi vinstrisinna í öryggis-og varnarmálum
þjóðarinnar VERÐUR að linna. Þjóðaröryggisins vegna!

   Sem betur fer  verða þingkosningar eftir örfáa mánuði!

    www.xg.is 

mbl.is Vill að vopn séu í lögreglubílum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband