,, Björt framtíð" pólitískrar upplausnar !
17.12.2012 | 00:12
Enn birtist spegilmynd pólitískrar upplausnar á Íslandi. Gnarr-
isminn með sósíaldemókrataísku stjórnleysis ívafi yfirtók R.vík
í síðustu borgarstjórnarkosningum. Undir merki ,,Besta Flokks".
Nú á augljóslega að prófa módelið á landsvísu. Með sama
Gnarr-innihaldinu og sama sósíaldemókrataíska stjórnleysis
ívafinu. Undir merki ,,Björt framtíð". - En bæði þessi fyrirbæri í
borg og á landsvísu eru kokkuð úr herbúðum Samfylkingar-
innar, útibú sem á að tryggja sósíaldemókrötum áframhaldandi
völd í borg og í ríkisstjórn. Þekkt pólitísk hernaðartækni, en lævís.
Og límstykkið? Rauði límþráðurinn? Trúarjátningin? Grunntóninn?
Jú. ESB-trúboðið! Pólitísk upplausn í anda sósíaldemókrataískar
alþjóðahyggju, þar sem jafnvel trúðar og geimverur koma jafnvel
við sögu. Allt til að skapa enn meiri glundroða og virðingarleysi,
svo ekki sé talað um virðingu fyrir þjóðlegum gildum og viðhorfum.
Sem eru jú algjör bannorð! Til að ná lokamarkmiðunum. Valdataum-
unum! Í þágu sósíaldemókrataismans!
Í komandi kosningum skýrist á hvaða leið íslenzkt samfélag er.
Eftir mesta efnahagslegt hrun Íslandssögunar. Verður það á leið
áframhaldandi upplausnar, jafnvel anarkisma, í boði ríkjandi afla,
eða tekst að skapa ÁBYRGA STJÓRNFESTU á ný? STJÓRNFESTU
með trú á land og þjóð, fullveldi og sjálfstæði. - Já hinna gömlu góðu
íhaldsgilda!
Harður spennandi kosningarvetur er augljóslega framundan!
Forysta í öllum kjördæmum ákveðin | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.