Bjarni Ben baðst EKKI afsökunar á Icesave!


  Í ljósi fullnaðarsigurs Íslendinga í Icesave, hefði formaður
Sjálfstæðisflokksins Bjarni Benediktsson, mátt biðja þjóðina
og Landsfund Sjálfsstæðisflokksins, afsökunar  á  framferði
sínu og forystu flokksins í Icesave-málinu. En Íslendingar eru
70-80 milljörðum ríkari  af erlendum  gjaldeyri í dag,  vegna
þess að þjóðin neitaði að leggjast á fjórar fætur eins og kjöltu-
rakki   frammi  fyrir erlendum nýlendukúgurum og undirgangast
ólögvarðar skuldadrápsklyfjar þeirra í Icesave númer þrjú.

   Icesave-forysta Sjálfstæðisflokksins og sá stóri hópur þing-
manna þeirra sem sviku í Icesave með vinstriöflunum eru ekki
trúverðugir fyrir þjóðhollum borgarlegum viðhorfum, svo míkið
er víst!

  Svo á að ,,GERA HLÉ" á ESB-aðildarviðræðunum en ekki hætta
þeim og afskrifa! Hvers konar hringlandaháttur er það?

   Og Schengen-ruglinu á að halda áfram! Jú sem segir svo ótal
margt um flokkinn og hina loðnu sósíaldemókrataísku Evrópupólitík
hans.

   Og ekki má hrófla við hinum stórgallaða EES-samningi. Sem
augljóslega átti ríkan þátt í hruninu og gerði það tæknilega
mögulegt. Enda afkvæmi Sjálfstæðisflokksins eins og Schengen
ruglið!

   Nei. Icesave-forysta Sjálfstæðisflokksins er ALLS EKKI treyst-
andi í Evrópumálum. Sbr. að svíkja samþykktir síðasta Lands-
fundar í Icesave. Og viljaleysi  varðandi IPA-styrkina sem Sjálf-
stæðisflokkurinn gat  alveg látið brenna inni á tíma segir margt.
Svo vita allir um stuðning helstu forystumanna flokksins  við for-
setaframbjóðenda ESB-trúboðsins s.l  sumar,  og  svona  mætti
lengi telja.

   Og trúverðugleikinn í efnahagsmálum. Hjá Hrunflokknum sjálfum!
Er svo kapítuli út af fyrir sig! 

   Nei það þarf meira en skrautumprýddan Landsfund til að lappa
upp á ímyndina Bjarni Benediktsson..........

mbl.is Best borgið utan Evrópusambandsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Mikið djö..... er ég sammála þér.

Það vantar hér á landi "SJÁLFSTÆÐISFLOKK"

Ekki einhverja silfurskeiðasyni sem aldrei hafa unnið 

þjóðinni neitt gagn, en kostað hana milljarða í gjaldþrotum,

og þykjast ekki kannast við eitt né neitt.

Samt eru til einfelndingar sem trúa því að þessi maður standi

með sinni þjóð.

Sorglegt en satt.

M.b.kv.

Sigurður Kristján Hjaltested (IP-tala skráð) 22.2.2013 kl. 01:23

2 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

En Sigurður hvað með www.xg.is  ?

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 22.2.2013 kl. 01:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband