Góðar horfur á þjóðhollri borgaralegri stjórn í vor!


    Nú þegar Sjálfstæðisflokkur og Framsókn hafa haldið sína
lands-og flokksfundi, og gengið frá sínum framboðslistum,
eru góðar horfur á að þjóðin fái þjóðholla mið/hægristjórn í
vor. Eftir ömurlegustu ríkisstjórn vinstrimanna frá fullveldi.
Og enn er ekki öll von úti um að nýr hægriflokkur komist  á
þing, eins og t.d Hægri grænir, sem gætu stutt slíka borgara-
lega ríkisstjórn.  En eitt fyrsta verk slíkrar ríkisstjórnar yrði
að henda ESB-umsókninni  út í hafsaugu, og að öll orka færi
síðan  í  að  stórbæta  hag  heimilanna, og  allra  þeirra  sem
minnst mega sín, ásamt því að  stórauka hagvöxt sem er jú
grundvöllur velferðar og hagsældar þjóðarinnar.

   Eitt jákvætt hefur hin alræmda vinstristjórn skapað. Jarð-
veg fyrir grundvallar uppstokkun í íslenskum stjórnmálum.
Þar sem hægri og vinstriblokkir takist á um völdin, eins og
gerist viða erlendis. Þannig fengust skörp skil í stjórnmálin,
og kjósendur vissu hvaða stjórn og stjórnarhætti þeir væru
að kjósa. Það að allir  gangi óbundnir til kosninga er orðið
úrelt og úrsérgengið fyrirkomulag. SKÖRP SKIL í stjórnmálin
er það sem koma skal!

   Já gott að íslenska vorið í stjórnmálunum sé skammt undan!

mbl.is Skoraði á fólk að kjósa Hönnu Birnu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Heill og sæll Guðmundur Jónas æfinlega; sem og aðrir gestir, þínir !

Guðmundur Jónas !

Þetta er; vægast sagt, skammarlegur pistill, af þinni hálfu.

Þegar landsmenn sjá loks; fyrir endann á hörmungar óstjórnartíma vinstra packsins, stekkur þú til - og lofsamar Andskotans miðju moðið, sem öllu kom hér á hvolf; 1991 - 2007/2009, fornvinur góður.

Þú lætur; eins og allt of margir samlanda, gerir ekki minnsta ráð fyrir, að koma mætti á heilbrigðri utanþingsstjórn fólks, úr framleiðslu- og þjónustu greinunum, eftir hörmungartíma áranna, 2009 - 2013.

Þér finnst líklegast; eins og hvítflibba- og blúndukerlinga stjórnarfarið, megi ekki með nokkru móti missa sig / og nú, skal einblínt, á miðju kraðakið.

Fremur dauflegar kveðjur; að þessu sinni, því miður /

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 24.2.2013 kl. 01:33

2 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Óskar Helgi!  VERTU RAUNSÆR!   HVERN ANDSKOTANN VILT ÞÚ Í STÖÐINNI Í DAG?  HVAÐA KOST ERTU AÐ BJÓÐA UPP Á  Í  R A U N V E R U L E I K A N U M?
SKÝRÐU FRÁ HONUM! Mann þinn feril í hinum ÖMURLEGA Frjálslyndaflokki og
ÖLLU HELVÍSTIS RUGLINU ÞAR!  Það sem þú studdir FRAM Í RAUÐAN DAUÐANN!
Og gerir EFLAUST ENN! Já er bara ALLS EKKI SÁTTUR VIÐ ÞIG HÉR hafandi LOFSUNGIÐ FRjÁLSLYNDARUGLIÐ ÚT OG SUÐUR hér á árum áður!

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 24.2.2013 kl. 01:46

3 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Já SÖMULEIÐIS! Fremur dauflegar kveðjur til þín! ÞVÍ MIÐUR!

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 24.2.2013 kl. 01:52

4 identicon

Sæll á ný; Guðmundur minn !

Farðu ofan í athugasemda safnið /

Var búinn; að stinga upp á góðum stjórnendum áðan, m.a. :

Eymundi í Vallanesi -

Vilhjálmi á Skipaskaga (Verkal. fél, Akraness) -

Skúla á Tannstaðabakka, í Húnaþingi, os.frv.

Með; ögn mildari kveðjum; að þessu sinni /  

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 24.2.2013 kl. 02:21

5 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Sæll Óskar. Veist að þessi upptalning þín er ekki í RAUNVERULEIKANUM!
DRAUMÓRAR!  Með ögn mildari kveðju!

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 24.2.2013 kl. 02:43

6 identicon

Sæll á ný; Guðmundur Jónas !

Það jaðrar nú við; að þessi síðustu andsvör þín, séu - eða; eigi að vera móðgun við mig, vægast sagt.

Mér er fyllsta alvara; með þessarri nafnaskrá, var aðeins hluti þeirra 6 nafna, sem ég sendi þér fyrr í nótt, en virðist hafa glutrazt niður í Mbl. kerfinu, þar voru : Gunnar Þorbjarnarstjóri í Grindavík / Dofri í Suðurverki og Ólafur á Þorvaldseyri, til viðbótar hinum þrem.

Sjáir þú eitthvað; að þessum nafnalista - skaltu þá bara koma með þínar tillögur sjálfur, treysti þú þér til, að minnsta kosti er alveg ljóst, að alþingi gerir ekki annað, en að sundra og spilla enn frekar, þessu samfélagi hér, sem á hverfanda hveli er, að virðist.

Hlífðu alla vega fólki við; að mæra 2 glæpa flokkkanna, af hinum 4, í óverðskuldaðan hástert, Guðmundur minn.

Með; þeim sömu kveðjum - sem fyrri / 

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 24.2.2013 kl. 03:44

7 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Óskar minn. Því miður. Þekki lítið eða ekkert til þessara nafna sem þú upptelur.
Alla vega er þungavigtin ENGIN í svona upptalningu  til að eiga við vinstriöflin og bjarga fullveldi og sjálfstæði Íslands. Þurfum í dag BREIÐFYLKINGU þjóðhollra borgaralegra afla til að frelsa þjóðina frá hinum andþjóðlega sósíaldemókrataisma sem  fór með allt til  fjandans í hruninu og ætlar svo að troða okkur inn í ESB-ruglið. VERÐUM AÐ VERA RAUNSÆIR Í ÞEIM EFNUM!

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 24.2.2013 kl. 10:50

8 identicon

Sæll á ný; Guðmundur Jónas !

Ekkert má það kosta; svo að siðferðilegum þætti, mögulegrar endurreisnar, yrði kastað útbyrðis, svo gerendur og hjáæparkokkar atburðarásar Haustsins 2008, komizt NOKKURN tíma, til valda hér, á ný.

Og; með hjálparkokkum, á ég vitanlega, við S og V listana, Guðmundur Jónas.

Með sömu kveðjum - sem þeim síðustu / 

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 24.2.2013 kl. 21:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband