Hægri-bylgja í Bretlandi og Evrópu. Líka Íslandi! Ánægjulegt!
13.3.2013 | 00:19
Ánægjulegt er að hægri-bylgja er í uppsiglingu í Evrópu.
Þjóðholl hægrisinnuð öfl eru í sókn gegn hinni gengdarlausri
sósíalísku miðstýringaráráttu hiðs gjörspillta deyjandi Evrópu-
sambands.
Þannig er mikill meirihluti kjósenda í Bretlandi á þeirri skoðun
að fylgi breska Íhaldsflokksins myndi aukast tæki hann harða
stefnu gegn ESB skv. skoðanakönnun. Enn fleiri, eða 75% telja
fylgi íhaldsmanna aukast tækju þeir harðari afstöðu gagnvart
ólöglegum innflytjendum. 69% sögðu Íhaldsflokkinn vænlegan
valkost ef þeir myndu halda sig við stuðning við ,,hefðbundnar
fjölskyldur" þ.e.a.s hina fjölmennu millistétt. Þá eru Bretar skv.
könnuninni reiðubúnir að halla sér til hægri í félagslegum málum.
Allt eru þetta ánægjuleg tíðindi fyrir okkur hægrisinna á Íslandi,
enda allt sem bendir til þjóðhollrar borgaralegrar ríkisstjórnar
eftir komandi kosningar. Allt er þetta líka í takt við þróunina í
í Evrópu þar sem uppreisn frá hægri gegn hinu yfirþjóðlega valdi
í Brussel færist stöðugt í aukana.
Fyrir okkur í HÆGRI GRÆNUM, flokki fólksins er þetta ekki
síður ánægjulegt. Flokkur sem berst gegn ESB-aðild, uppsögn á
Schengen-ruglinu og þar með stórbættu landamæraeftirliti, og
ekki síst endurskoðun á hinum stórgallaða EES-samningi.
Já gott að vera í takt við jákvæða pólitíska þróun og vilja fólk-
sins! Í Evrópu og Íslandi.......
www.xg.is
Bretar halla sér til hægri | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 01:21 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.