Frábær kynning Hægri grænna á ÍNN !


   Frábær  klukkutíma  kynningarþáttur  Hægri grænna, flokks
fólksins, var á ÍNN í  gærkvöldi. Hrósa ber ÍNN að gefa nýjum
framboðum tækifæri til að kynna sig þeim að kostnaðarlausu,
meðan RÍKIS-Fjórflokkurinn skammtar sér hálfan milljarð til
að halda sér gangandi.  Já  á  kostnað  okkar skattgreiðenda,
sem HÆGRI GRÆNIR flokkur fólksins vill einn flokka afnema.

   Í þættinum komu fram helstu frambjóðendur flokksins, mjög
svo frambærilegt fólk. Karlar  og  konur  sem  er  allt laust  við
spillingu Fjórflokksins. Fólk  með  tröllatrú  á íslenska  framtíð
og tilbúið að gefa krafta sína í að byggja upp nýtt og betra Ís-
land.

    Athyglisverðast  var  hversu  formanni flokksins, Guðmundi
Franklín Jónssyni tókst vel upp að útskýra á mannamáli hvernig
flokkurinn hyggst afnema verðtrygginguna til neytenda, umbylta
íbúðalánasjóðskerfinu og leysa skuldavana heimilanna á markaðs-
legum forsendum sjá nánar hér www.xg.is .

    Óhætt er að segja að HÆGRI GRÆNIR flokkur fólksins séu nú
komnir á fullt í kosningarbaráttuna. Enda tíminn naumur og senn
styttist í kosningar.

   ÁFRAM HÆGRI GRÆNIR!  ÁFRAM ÍSLAND!

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Allra athygli verður,gott að sjá Mimma þar og reynda kennslukonu,kom vel fyrir.

Helga Kristjánsdóttir, 23.3.2013 kl. 22:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband