Hreinsa verður til á ESB/ ICESAVE-RÚV fréttastofunni!


   Þetta gengur ekki lengur! Hvenær verður farið í að hreinsa
ærlega til á þessari ESB-ICESAVE-sinnuðu fréttastofu RÚV?
En það nýjasta  er  að bæði  forsetinn og forsætisráðherrann 
eru nánast lægðir í einelti  af  vinstri-öflunum, vegna  þjóð-
ræknislegra ávarpa sinna nú um áramótin,  og sem  hið ESB/
Icesave-sinnaða RÚV tekur nú fullan þátt í  og kyndir undir!  

   Þannig var einn af hinum sósíaldemókrataísku sagnfræðingum
RÚV ekki bara í hádegisfréttum í gær, heldur líka í kvöldfréttum
og Speglinum fengin til að endurtaka sín dæmalausu viðhorf,  um
að samstaða þjóðar sem forsetinn lagði áherslu á, væri goðsögn,
enda grundvallarhugmynd  hinnar  vondu  þjóðernishyggju. Og í 
kjölfarið í sama Spegli kom meiriháttar pistill frá hinni sósíaldemó-
krataísku fréttakonu Spegilsins um að Icesave væri ekki enn úr
sögunni með viðeigandi viðtali við sósíaldemókrataískan viðmæl-
anda. -  Icesave  vixill  Steingríms  í LBI  væri  nefnilega  jú enn
ógreiddur! 

   Allt er þetta með hreinum ólíkindum, hvernig þjóðrækni og heilbrigð
þjóðhyggja er orðið slíkt tabú í heimi vinstrimennskunnar, að innan
hennar umpólast allt sé  minnst á slík  sjálfsögð viðhorf. Meir að
segja Kryddsíldin á Stöð 2 fór ekki varhluta af slíkri móðursýki.  

   Ekki nema eðlilegt að stór meirihluti þjóðarinnar bindi miklar 
vonir við að nýr útvarpsstjóri sópi og hreinsi ærlega til á hinni
sósíaldemókrataísku ESB/ICESAVE-fréttastofu RÚV!

   Og þótt fyrr hefði verið! 

   

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband