Stríðsglæpir síonista og íslamista !


    Fyrir botni Miðjarðarhafs og raunar í Mið-Austurlöndum
geysir grimmilegt stríð. Í Palestínu berjast öfgasinnaðir
síonistar við öfgasinnaða íslamista. Og annars staðar  í
Mið-austurlöndun s.s  Írak, Sýrlandi og  víðar  berjast 
öfgafullir íslamistar innbyrðis. Hatrið og drápsfýsnin 
virðist óendanleg hjá þessum stríðsglæpamönnum og 
ekkert  virðist  duga  til  að  koma  vitinu  fyrir  þessar
skepnur! Því annað er ekki hægt að kalla þessi pólitísku
villudýr Mið-Austurlanda, slíkir eru stríðsglæpir þeirra,
en meðan líða óbreyttir borgarar miklar þjáningar sem
orð fá ekki lýst!

   Meðan þessi öfgaöfl síonista og íslamista ráða ríkjum,
er alveg fráleitt að Ísland blandi sér inn í þennan hrylling.
Gætu frekar reynt að koma vitinu fyrir þær vestrænu 
þjóðir, s.s USA sem selja þessum villidýrum vopn, þótt 
það sé afar ólíklegt að  það takist.

    Mikil hætta er á að þessi átök breiðist út, m.a til Evrópu.
Sbr. hryðjuverkaáform norskra múslima í Noregi, sem 
ætti að vera þörf áminning til okkar á Vesturlöndum að
stöðva múslimavæðingu Evrópu! Því miður virðast 
róttækir og öfgafullir íslamistar vera í mikilli sókn enda 
markmið þeirra heimsyfirráð! Hér heima eigum við að 
bregðast við og banna moskubyggingu íslamista á Íslandi,
og setja þeim strangar skorður neita þeir að aðlagast okkar
venjum og grundvallarreglu!  Svo einfalt er það í ljósi
ástands heimsmála í dag!  

    Hér er sem sagt ENGINN munur gerður á framferði
öfga síonistanna í Ísrael, né öfga-Hamas-íslamistanna í
Palestínu og víðar!  Allt eru þetta öfga/stríðsglæpamenn
sem ber að meðhöndla sem slíka. - Og alveg með öllu
óskiljanlegt  hvernig  sumir  sem  kalla  sig kristna geta
tekið  afgerandi afstöðu með sitt hvorri stríðsglæpahópnum!  

   Eina friðarvonin er sú að það takist að útrýma þessum öfgum,
þótt því miður  sé ekkert útlit fyrir það í bráð!

mbl.is Funda vegna ástandsins á Gaza
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Predikarinn  -  Cacoethes scribendi

Þvílíkt og annað eins að horfa á „sögustundina“ í Íslandi í dag þar sem heiðursgesturinn var læknirinn Hauksson. Mönnum er hollt að hirfa a neðangreind myndbönd til að ná áttum

https://www.youtube.com/watch?v=8EDW88CBo-8

https://www.youtube.com/watch?v=g_3A6_qSBBQ

https://www.youtube.com/watch?v=XGYxLWUKwWo

https://www.youtube.com/watch?v=qIRJO9TaaOI

https://www.youtube.com/watch?v=QAuBc_cbXo0

https://www.youtube.com/watch?v=5jjOOpEvMHA

https://www.youtube.com/watch?v=W9ReF4UUa4E

Predikarinn - Cacoethes scribendi , 25.7.2014 kl. 03:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband