Þýsk stjórnvöld afturkalli ummælin tafarlaust !


   Ummæli þýska Evrópumálaráðherrans um að ekkert
mark sé takandi á ákvörðun íslenskra stjórnvalda
um afturköllun ESB-umsóknarinnar, eru gjörsamlega
óþolandi og vítaverð afskipti af íslenskum innan-
ríkismálum.

 Ekki verður annað trúað en að þýski sendiherrann
verði tafarlaust kallaður í utanríkisráðuneytið,
og þýsk stjórnvöld krafin afsökunarbeiðni.

 Þá ber utanríkisráðherra að senda út harðorða
yfirlýsingu til ráðamanna í Brussel um að verði
ekki Ísland strax tekið af umsóknarlista að ESB
muni það hafa mjög alvarlega afleiðingar í sam-
skiptum Íslands við Evrópusambandð.

  Yfirgangur ESB og sósíaldemókratanna í Berlín er
ótrúlegur. Sem íslensk stjórnvöld verða að mótmæla
svo eftir verði tekið! 

  Enn ein stór sönnun þess að inn í hið Sovétska
ESB hefur Ísland  EKKERT AÐ GERA !


mbl.is Virða afstöðu stjórnarinnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Nú, þetta er hárrétt hjá Þjóðverjanum. Eigum við að taka hann á beinið fyrir að segja satt? Eru við ekki búin að verða okkur nóg til skammar.

Haukur Kristinsson (IP-tala skráð) 11.5.2015 kl. 22:19

2 Smámynd: Jack Daniel's

Samkvæmt lögum getur eitt ráðherrakvikindi ekkert afturkallað umsóknina og hætt henni upp á sitt einsdæmi eins og Skagafjarðarviðundrið reyndi.

Ríkisstjórnin getur heldur ekki gert það því alþingi hefur ekki veitt henni umboð til þess.

Þeir sem halda að það sé búið að afturkalla ferlið ættu að sjá sóma sinn í því að kynna sér stjórnsýslulög í landinu áður þeir byrja að gjamma eins og óðir hundar til varnar húsbónda sínum.

Skoðið bara lögin.  Þau eru ótvíræð.

Jack Daniel's, 11.5.2015 kl. 22:56

3 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Mun ekki svara útsendurum erlendra afla hér þú þarna Haukur
og  einhver Jack undir fölsku flaggi. Mun henda ykkur hér út
og loka á þetta þjóðsvikabull í ykkur. Er ekki svaravert!

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 11.5.2015 kl. 23:06

4 Smámynd: Jack Daniel's

Blessaður góði gerðu það þá bölvaður auminginn þinn.
Þú er svikarinn við fólkið og þjóðina þína verjandi glæpahyskið sem hér ræður ríkjum.

Það eru einmitt svona helvítis öfgaþjóðernisfasistar eins og þú sem eru sem betur fer að þurkast út enda rörsýnin og heimksan það sem stýrir ykkur en ekki skynsemi eða víðsýni.

Hræki á þig næst þegar ég rekst á þig á förnum vegi.

Jack Daniel's, 11.5.2015 kl. 23:56

5 Smámynd: Kristin stjórnmálasamtök

Stend með þér, Guðmundur Jónas. Og ekki er mark takandi á þessum tveimur viðhengjum Evrópusambandsins, sízt allra Hauki Kristinssyni (ef hann þá heitir því nafni).

Sjónarmið fullveldissinnans Ásmundar Einars Daðasonar alþm. o.fl. flokksmanna hans er það, að samþykkt Alþingis í júlí 2009 hafi í raun aðeins verið viljayfirlýsing þess, en málinu í raun vísað til ríkisstjórnarinnar þá og að umsóknin sjálf hafi verið hennar. Reyndar var það gert meðólöglegum hætti að taka málið þaðan út á meginlandið, því að ekki var farið eftir ákvæðum 16.-19.gr. stjórnarskrárinnar um að bera málið undir forsetann á ríkisráðsfundi og leita undirskriftar hans. Ef þetta fyrrtalda er rétt, getur ný ríkisstjórn vitaskuld afturkallað umsóknina. Sjálfur hefði ég þó viljað sjá ríkisstjórnarflokkana takast á við það af hugrekki að fá nýja samþykkt Alþingis um að draga til baka samþykkta stefnu árið 2009.

Hér er líka grein um þetta alvarlega mál, á Fullveldisvaktinni, vef Samtaka um rannsóknir Evrópusambandinu, þar sem þú situr meðal annarra í stjórn:  

Evrópumálaráðherra Þýzkalands með frekleg afskipti af íslenzkum innanríkismálum

Kristin stjórnmálasamtök, 12.5.2015 kl. 00:01

6 Smámynd: Jón Valur Jensson

Þetta innlegg var mitt, JVJ, ekki frá Kristnum stjórnmálasamtökum!

Óvart var ég (ennþá) innskráður á blogg KS!

Jón Valur Jensson, 12.5.2015 kl. 00:04

7 Smámynd: Jón Valur Jensson

Skelfilegt er að sjá hér ruddafengið orðbragð þessa Jacks; svona lagað á ekki að sjást á Moggabloggi og verðskuldar úthýsingu.

Jón Valur Jensson, 12.5.2015 kl. 00:08

8 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Takk JVJ. Þetta landsölulið sem betur fer í miklum minnihluta á
verulega bágt, mikið ofstopa og öfgalið sem virðir ekki lýðræðið
fremur en einræðisliðið í Brussel. Hugsaðu þér froðufallandi heiftina í þessu öfgaliði að hóta að hrækja á mann ef maður verður
á vegi þess.  Já þetta þjóðsvikalið á augsjáanlega mjög bágt!

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 12.5.2015 kl. 00:10

9 Smámynd: Snorri Hansson

Ég er ánægður að  yfirþjóð sambandssins skuli vera að reyna að komast að því hvort um raunverulega uppsögn sé að ræða.

Hann hefur sjálfsagt talað við nokkra ESB dyndla og var  því smá vandræðalegur.

Nú þurfa góðir men að semja nýtt bréf sem utanríkisráðherra skrifar undir.

Bréf þar sem það er nagl fast hvað átt er við.

Snorri Hansson, 12.5.2015 kl. 02:55

10 Smámynd: Jósef Smári Ásmundsson

Þetta hefði að sjálfsögðu átt að fara fyrir þingið. Einn ráðherra getur ekki slitið umsóknarumræðum. Aðferðafræðin var sovesk í eðli sínu. Tek það fram að ég er ekki fylgjandi aðild að ESB svo þessi skoðun er ekki lituð af því. Ég er einfaldlega lýðræðissinni.

Jósef Smári Ásmundsson, 12.5.2015 kl. 08:29

11 Smámynd: Sæmundur G. Halldórsson

Manninum varð það á að halda því fram að Ísland væri lýðræðisríki og að það væri íslensku þjóðarinnar að taka þessa ákvörðun með þeim hætti sem tíðkast í lýðræðsríkjum. Það er ekki nema von að síðuhöfundur og viðhlæjendur hans trompist af bræði yfir að heyra annað eins fullyrt.

Sæmundur G. Halldórsson , 15.5.2015 kl. 17:46

12 Smámynd: Jón Valur Jensson

Þú ert ekkert fyndinn, Sæmundur. Þetta er frekleg íhlutun í okkar innanríkismál.

Jón Valur Jensson, 15.5.2015 kl. 20:33

13 Smámynd: Sæmundur G. Halldórsson

Hvað af því sem maðurinn sagði er svona hneykslanlegt? Að Ísland sé lýðræðisríki, að það sé ekki hans að skera úr um þetta mál heldur íslensku þjóðarinnar eða að þýska ríkisstjórnin myndi bjóða Íslendinga velkomna ef þeir kysu fulla aðild að Evrópusambandinu?

Sæmundur G. Halldórsson , 17.5.2015 kl. 14:35

14 Smámynd: Jón Valur Jensson

Hann sagði miklu meira en þetta. Reyndu ekki að draga fjöður yfir það. Og viðleitni Evrópusambands-taglhnýtinga hér er bæði aumkunar- og skammarverð.

Jón Valur Jensson, 17.5.2015 kl. 20:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband