Við seljum málstað okkar ekki Gunnar Bragi !

Það virðist orðin engin takmörk sett hvað
þessi Gunnar Bragi utanríkisráðherra  er
tilbúinn til að leggjast lágt til að klóra
sig út úr afglöpum sínum í dag varðandi við- 
skiptaþvinganir Íslands gagnvart vinaþjóð
okkar Rússum.

Nú virðist það síðasta útspilið hans að
það ,,geti kallað á umræður um afstöðu Ís-
lands í málefnum Rússa verði ESB  ekki við
beðni um lækkun  innflutningstolla". 

Hér er vart hægt að hugsa sér ógeðfeldari
viðhorf sem málsvari fullvalda ríkis getur
viðhaft í alþjóðlegum samskiptum!

Er þá utanríkisstefna Íslands allt í einu 
orðin söluvara Gunnar Bragi? Ertu að segja
að Ísland selji málstað sinn hæstbjóðanda
hverju sinni?

Reykjavíkurbréf Mbl var frábært í dag og upp-
lýsandi um ömurlegt ástand  innan utanríkis-
ráðuneytisins,og einnig utanríkismálanefndar,
þegar kemur að því að verja íslenska þjóðar-
hagsmuni.

Skrif Reykjavíkurbréfsins birtust áður en
hin fráleitu og nánast vítaverðu viðhorf
utanríkisráðherra komu fram á RÚV í kvöld.

Framganga þessa Gunnars Braga í stóli utan-
ríkisráðherra hlýtur að kalla á afsögn hans
nú þegar. Hin pólitísku afglöp hans í starfi
síðustu daga og  misseri eru orðin slík, að
málstaður og ímynd Íslands á alþjóðavettvangi
er í veði!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Valur Jensson

Tek undir orð þín hér, Guðmundur Jónassmile

Jón Valur Jensson, 15.8.2015 kl. 21:35

2 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Takk félagi Jón Valur !

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 15.8.2015 kl. 21:37

3 Smámynd: Kristján P. Gudmundsson

Sigmundur Davíð verður að slá í borðið og reka kjánann, GUNNAR Braga Sveinsson úr stjórn sinni sem bráðasta. Við höfum ekki nennu til að fylgjast með svona skrípaleik lengur.

Með bloggvina kveðju,

kristjan9

Kristján P. Gudmundsson, 16.8.2015 kl. 04:42

4 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Takk fyrit þetta Kristján

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 16.8.2015 kl. 19:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband