Forsetinn bjargi klúðrinu mikla !

Heyrir það ekki til algjörra undantekninga,
að forseti Íslands þurfi að mæta á neyðar-
fundi með erlendum sendiherra 
vinarþjóðar,
eftir að utanríkisráðherra og 
ráðuneyti
hans hafa klúðrað svo málum í samskiptum
þjóðana, að við blasir algjört uppnám í
70 ára mikilvægum viðskiptum þeirra? 

Jú, það heyrir til algjörra undantekninga.
Algjörra!

Klúður á klúður ofan, og enn meira klúður
nú, sem seint eða aldrei verður toppað,
hefur einkennt embættisfærslur Gunnars 
Braga í ráðherrastóli utanríkismála.

    Og enn situr hann samt !

Að Ísland hafi þannig tekið meðvirknis-
lega þátttöku í viðskiptaþvingunum gegn
sjálfu sér, á sér hvergi heimssögulegar
hliðstæður í alþjóðaviðskiptum. Því að
þungar búsifjar Íslendinga verða margfalt
á við aðrar þjóðir, og nánast engar hjá
þeim sem  þvingunum er beitt að. Hvorki
Rússum né ESB-ríkjum. Hvað þá USA! Nema
litla Íslandi.

  Og undir öllu þessu situr svo allt 
klapplið ESB-trúboðsins á Íslandi, með
ráðuneytisstjóra sinn á fremsta bekk!
Flissandi!

  Snild! Já tær snild!

  Í pólitískum hálfvitahætti!


mbl.is Forsetinn ræðir við Rússa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Valur Jensson

Vel mælt hjá þér, Guðmundur Jónas.

Já, ótrúlegt er það af þessum ráðherra að samþykkja (í umboði hvaða kjósenda?) að leggja margfaldar byrðar á Íslendinga miðað við það sem aðrar þjóðir þurfa að undirgangast!

Hefði hann ekki getað byrjað á því að segja: "Við skulum líta á þetta og taka það til athugunar, ef við sjáum að ykkur sé alvara með málinu, með því taka ákvörðun um að skrúfa fyrir gasið frá Rússlandi!"

Jón Valur Jensson, 19.8.2015 kl. 10:15

2 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Takk fyrir þetta Jón. Jú virððumst vera sammála í svo mörgu, þessu sem öðru!

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 19.8.2015 kl. 13:02

3 Smámynd: Jón Þórhallsson

Mun mun Bjarni Ben eitthvað hlusta á forseta Íslands?

Hefur Gunnar Bragi ekki meirihluta þingsins á bak við sig í þessu máli?  

Alþingi og þjóðin virðist vera meira upptekin af gay-pride-göngum heldur en að halda þjóðfélaginu gangandi með tekju-öflun:

http://thjodarskutan.blog.is/blog/thjodarskutan/entry/1908694/

Jón Þórhallsson, 23.8.2015 kl. 13:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband