Verður næsti utanríkisráðherra Evrópusambandssinni ?



  Allt bendir til að Sjálfstæðisflokkur og Samfylking
myndi nýja ríkisstjórn næstu daga. Gera má ráð
fyrir að ráðherraembætti skiptist jafnt milli flokk-
ana. Gerist þetta er það í fyrsta skipti sem ríkis-
stjórn Íslands  er a.m.k til helminga skipuð eitil-
hörðum Evrópusambandssinnum. Og það sem
meira er. Allar líkur benda til, að  sjálfur foringi
Evrópusambandssinna á Íslandi, Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir, verði næsti utanríkisráðherra.

   Vitað er að innan Sjálfstæðisflokksins eru mjög
sterk öfl sem tengjast viðskiptalífinu sem vilja
aðild Íslands að ESB og að tekin verði upp evra.
Meðan hinn sterki leiðtogi Davíð Oddsson var
formaður Sjálfstæðisflokksins tókst honum að
halda ESB-öflunum innan flokksins í skefjum.
Í dag nýtur hans ekki við lengur, og nú sjást 
þess glögg merki að ESB-öflin innan Sjálfstæðis-
flokksins eru komin á fullt skrið. Það var ekki
síður af tilstuðlan þeirra að samstjórn Sjálfstæðis-
flokks og Samfylkingarinnar er nú að setjast á
koppinn.  Þorsteinn Pálsson fyrrverandi formaður
Sjálfstæðisflokksins og Evrópusinni og Hreinn
Loftsson stjórnarformaður Baugs og mikill Evrópu-
sinni hafa t.d hvatt mjög til myndunar ríkisstjórnar
með Samfylkingunni ekki síður út af Evrópumálum.
Ljóst er þvi að ESB-sinnar innan Sjálfstæðisflokk-
sins hafa náð takmarki sínu í því að tengja nú
mjög náið flokkinn við Samfylkinguna, sem hefur
það á stefnuskrá sinni að Ísland gerist aðili að
Evrópusambandinu og taki upp evru.

   Björn Bjarnason hefur sagt að verði ESB-aðild
sett á dagsskrá klofni Sjálfstæðisflokkurinn. Þess
vegna verður gerð málamiðlun um orðaval í til-
vonandi stjórnarsáttmála, til að friða ESB-and-
stæðinga innan flokksins í byrjun. Hins vegar er
alveg ljóst, að verði Ingibjörg Sólrún utanríkis-
ráðherra mun hefjast kaflaskil í utanríkisstefnu
Íslands í Evrópumálum. Utanríkisráðherra, hver
sem hann verður, mun ávalt setja sitt mark á
íslenzka utanríkisstefnu og ræður miklu um hverjar
áherslunar verða. Og þótt tiltekin ákvæði eru í
stjórnarsáttmála í upphafi kjörtímabils, getur
mat á kringumstæðum breyst, þegar mál hafa
þróast í tiltekna átt. Vitað er að Geir H Haarde
er mun opnari fyrir því að skoða Evrópumálin
en fyrirrennari hans.  Sama er að segja um vara-
formanninn, sem beitti sér mjög í því að hefja
stjórnarsamstarf með Samfylkingunni.

  - Fyrir þjóðlega sinnaða Íslendinga eru því
blikur á lofti ef fram heldur sem horfir.  Íslenzkt
fullveldi og sjálfstæði getur verið í hættu....


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband