Baugstíðindi hvetja ríkisstjórnina til dáða í Evrópumálum.


    Ríkisstjórnin sem sumir vilja kalla Baugsstjórnina
er ekki fyrr sest að völdum að Baugstíðindi fara að
segja henni fyrir verkum. Í leiðara í Fréttablaðinu í
dag segir að ekkert annað stjórnarsamstarf væri
líklegra til að sveigja í átt að Evrópusambandinu
og evrunni.

   Í leiðaranum segir m.a. ,, En þar sem formaður
Samfylkingarinnar er nú orðin utanríkisráðherra
og iðnaðar-viðskipta-og bankamál eru jafnframt
á hendi þess evrópusinnaða flokks má vænta
þess að aukin nálgun við Evrópusambandið
komist  á dagskrá á kjörtímabilinu. Einkum og
sér í lagi ef þær raddir innan Sjálfstæðisflokksins
styrkjast enn, sem kalla á eftir evrunni. Styrkur
þeirra radda hefur greinilega verið að vaxa á
undanförnum misserum, enda mikið um veikleika
krónuhagkerfisins rætt í viðskiptalífinu, einkum og
sér í lagi í fjármálageiranum.

   Að minnsta kosti er ljóst að ekkert annað
stjórnarsamstarf væri líklegra til að sveigja stefn-
una í átt að Evrópusambandinu og evrunni, hvað
sem líður hörðum orðum forystumanna Sjálfstæðis-
flokksins í þeim efnum á síðustu kjörtímabilum".

  Svo mörg voru þau orð og koma heim og saman
við það sem hér hefur verið haldið fram varðandi
myndun núverandi ríkisstjórnar. - Nú er bara að
sjá hvenær ESB-öflin innan Sjálfstæðisflokksins
hefji atlöguna af fullum krafti. Spurningin er ekki
lengur hvort, heldur hvenær

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband