Hvað gengur Pólverjum til ?
27.6.2007 | 21:31
Mjög svo óviðeigandi ummæli Póllandsforseta
á leiðtogafundi ESB nú á dögunum þess efnis, að
þar sem Þjóðverjar hefðu að hans sögn drepið um
6 millj. Pólverja í seinni heimsstyrjöldinni ættu því
Pólverjar rétt á mun meira atkvæðavægi innan ESB
heldur en stjórnskipunarsáttálin gerði ráð fyrir. Þessi
ummæli fellu að sjálfsögðu í mjög gríttan jarðveg
meðal fundarmanna og voru ekki til að bæta and-
rúmsloftið á fundinum.
En nú hefur forsætisráðherra Póllands enn bætt um
betur skv frétt á Mbl.is. Pólski forsætisráðherrann gaf
í skyn í útvarpsviðtali í gær að Þýzkaland samtímans
væri sambærilegt og þegar Adolf Hitler komst til
valda. Orðrétt sagði hinn pólski forsætisráðherra
Kacyzinski ,,eitthvað mjög neikvætt er að gerast í
Þýzkalandi og þess vegna vilji hann gefa út við-
vörun til þýzkra yfirvalda". Þetta kemur fram á
fréttavef Der Spiegel.
Ekki vildi Kacyzinski útskýra nánar hvað hann ætti
við. Hins vegar er ljóst að svona ummæli og viðhorf
eru ekki í þeim anda sem leiddi til stofnunar ESB á
sínum tíma. Þá er einnig ljóst að svona ummæli eru
til þess fallin að ýfa upp gömul sár.- En allra síst eru
þau til þess að bæta sambúðina innan ESB.
Því er eðlilegt að spyrja hvað Pólverjum gengur
eiginlega til með svona undarlegu yfirlýsingum og
viðhorfum ?
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.