Olíuhreinsunarstöð. Eftir hverju er beðið?


      Íslenzkur hátækniðnaður lýsti snemma í vor áhuga
um að reisa olíuhreinsunarstöð á Vestfjörðum. Að  sögn
Ólafs Egilssonar fyrrverandi sendiherra eins af forvígis-
mönnum Íslenzks hátækniiðnaðar, er þetta fjárfesting
upp á 200 milljarða, með 500 störfum + 200 annara sem
tengjast munu starfseminni. 20% af starfsmönnum er
háskólamenntað fólk. Engar nýjar virkjunarframkvæmdir
þurfa að koma til.

   Ástandið á Vestfjörðum er mjög alvarlegt um þessar
mundir svo ekki sé meira sagt. Ofan á mjög erfitt ástand
í atvinnumálum  Vesfirðinga mun fyrirhuguð skerðing á
þorskvóta koma harðast niður á Vestfjörðum. Það þarf
því eitthvað meiriháttar að koma til svo hinni ískyggju-
legri þróun verði forað. Allt tal um tilfærslur einhverra
opinberra starfa til Vestfjarða, bættar samgöngur  og
fjarskipti eru bara hjóm eitt miðað við þá stærðargráðu
sem við er að fást.

   Það ætti því að liggja beinast við að líta á þau gríðarlegu
tækifæri sem felast  í því fyrir vestfirskar byggðir að fá
eins kröftuga innspýtingu inn í vestfirskt samfélag og
yrði með uppbyggingu olíuhreinsunarstöðvar á Vestfjörðum.

   Með hliðsjón af öllu þessu. Hvers vegna er ekki lagður
miklu meiri þungi í þetta mál og raun ber vitni ?

   Eftir hverju er beðið ?
  
 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband