Eru sjálfstæðismenn að rumska ?


  Í hádegisfréttum  ríkisútvarpsins deilir Sigurður Kári
Kristjánsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins hart á
Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra vegna þess að
ráðherra hefur falið embættismönnum að endurskoða
vatnalögin. Hann segir að ríkið geti bakað sér miklar
bótaskyldur með þeim breytingum sem ráðherra leggur
upp með, og segir ákvörðun ráðherrans eftirhreytur frá
því hann var í stjórnarandstöðu og að Sjálfstæðisflokkur-
inn standi varla að breytingunum. Sjálfur kvaðst hann
muni brejast gegn þeim.

  Það er ánægulegt að sjálfstæðismenn skuli nú loks
vera farnir að rumska.  Kratar hafa hingað til ráðið
sviðinu að því er virðist. Má þar nefna hinar sósíal-
isku mótvægisaðgerðir vegna kvótaskerðingar, sem
koma þeim minnst að gagni sem fyrir tekjumissi verða,
andstöðu krata við olíuhreinsunarmálið og hvernig
þeir ætla að koma í veg  fyrir það án neins samráðs
við hinn stjórnarflokkinn, og áherslubreytingar í utan-
ríkis- og öryggismálum  sem fara mjög á skjön við það
sem t.d fyrri ríkisstjórn stóð fyrir.

  Framganga Sigurðar Kára er vonandi vísbending um
að sjálfstæðismenn fari nú almennt að rumska.

 




« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Kratar ráða litlu sem engu í þessu stjórnarsamstarfi sama hvað þeir þykjast ætla að gera þá eru þeir algerlega undir hælnum á hinum stjórnarflokknum sama hvað þeir reyna að sprikla.

Jakob Falur Kristinsson, 30.8.2007 kl. 17:10

2 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Hin nýja forysta Sjálfstæðisflokksins undir forystu varaformannsins
Þorgerðar Katrínar menntamálaráðherra hafa gefið krötum allt
of lausan tauminn eins og ég tiltók. Minni á að það var einmitt
Þorgerður sem beitti sér fyrir ríkisstjórn með krötum og kom í veg
fyrir samstarf með Framsókn og Frjálslyndum, sem hefði verið
farsælast. Kratagengið kringum Þorgerði á eftir að koma sjálfstæðismönnum í koll fyrr en seinna. Annars er þessu stjórn
mjög sundurlind og margir smákóngar þar á ferð. Vona að Framsókn og Frjálslyndir vinni vel saman að koma þessari
,,stjórn" frá völdum sem fyrst.

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 30.8.2007 kl. 17:38

3 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Það er grunnt á sósíalismanum hjá Össuri. Þjóðnýting og eignarupptaka á því sem hefur verið í einkaeign um aldir.

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 30.8.2007 kl. 21:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband