Eru sjálfstæðismenn að fara á taugum ?


   Hvað liggur svona rosalega á að selja hlut Orkuveitunnar
í REI ? Eru sjálfstæðismenn að fara á taugum?  Því má ekki
bíða með það að selja  í 1.1/2- til 2 ár í viðbót eins og upp-
runalega var gert ráð fyrir ? Allar líkur eru á að eigendur
Orkuveitunar, ,  munu hagnast um tugi milljarða á þeirri bið,
auk þess sem hlutur suðunesjamanna verður tryggari.
Á allur þessi hagnaður frekar að renna í vasa útvaldra ofur-
auðmanna, auk þess sem stórhætta er á miklum atgervis-
og þekkingarflótta úr Orkuveitunni fyrir slikk. Hvers vegna
á slíkt að gerast vegna þess  að svokölluð ,,hugmyndafræði"
sjálfstæðismanna segir svo um vegna innanflokksvandamála
þeirra ?  Hvers  konar rugl  er  þetta ? Og ætlar fulltrúi Fram-
sóknar þá að samþykkja það rugl til viðbótar öllu hinu ofur-
ruglinu sem gert hefur verið síðustu daga í þessu máli? Hvers
vegna talaði borgarfulltrúi Framsóknar ekki hreint út með
þetta í kvöld ? Borgarstjórinn talaði hins vegar eintóma
hebresku í Kastljósi kvöldsins sem enginn maður skildi!

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Góðan daginn nafni.

Nú er ég þér gjörsamlega ósammmála þegar þú fullyrðir eftirfarandi:

"Allar líkur eru á að eigendur
Orkuveitunar, ,  munu hagnast um tugi milljarða á þeirri bið,"

Hvaða bitastæða staðreynd liggur að baki þessari fullyrðingu?

Ég held engin.

Hvað verkefni hefur nú þegar verið samið um af REI, í hvaða löndum, hversu umfangsmikil, hvað munu þau skila miklum nettó hagnaði á næstu mánuðum/misserum, sem réttlæta þá fullyrðingu að Rvík geti fengið milljarða hagnað í sinn hlut á næstu 12/18 mánuðum?

Hverja þarf að "plata" til að greiða milljarða fyrir óskhyggju? Almenning, lífeyrissjóði, venjulega kjána, heila þjóð, saklausa útlendinga??

Ég hef hvergi séð neinar staðfestar fréttir um umsamin milljarða hagnaðar verkefni fyrir REI nú þegar, aðeins lauslegar hugmyndir um hugsanleg verkefni á Filipseyjum etc., ekkert sem ennþá hönd á festir.

Því miður sýnist mér, að þessar "milljarðagróða" hugljómunarhallir hjá REI á næstu mánuðum/misserum, minni mig a.m.k. óþægilega mikið á uppblásin verðmæti í anda DeCode oig annarra slíkra fyrir tiltölulega fáum árum.

Menn ætla kannski, á þekktan hátt, að kaupa og selja sjálfum sér fyrirtækið aftur og aftur, á uppblásnu og tilbúnu verði með tilbúið innistæðulítið verðmæti, í anda þekktrar flufélags verðsögu??

Af hverju hefur ENEX í eigu OR, og önnur slík sambærilega fyrirtæki íslensk, ekki nú þegar á undanförnum árum náð í slík milljarða verkefni? Ef ég man rétt þá var ENEX sett á fót einmitt til að starfa á alþjóða vetvangi í orkuöflun og virkjun jarðvarma út um allan heim.

Það má vel vera að á einhverjum áratugum muni einstök fyrirtæki ná fótfestu við jarðvarmavirkjanir eða hliðstæð verkefni erlendis, það er hið besta mál. En að milljarða gróði á næstu mánuðum fyrir   íslenskt þjóðfélag sé "fyrirsjánalega" öruggur og viss, er í besta falli  algjör óskhyggja en líklegast, því miður, byggð á tómri þvælu, ótrúlegri trúgirni,  einföldum blekkingum og bulli og vitleysu. 

Mér blöskrar þess sýndarveruleika óskhyggja. 

Ég vil miklu frekar fá lækkaðan hjá mér orkukostnaðinn á heimilinu, það finn ég strax í raunverlegum lífskjörum mínum, heldur en að trúa á skjótfengan milljarðagróða í mína þágu í óumsömdum, tilhæfulitlum "gróðaverkefnum" í jarðvarmavirkjunum erlendis.

Í guðanna bænum komið niður á jörðina.

Með réttu hefur verið sagt að margur verði af aurum api.

Mér finnst það óþarfi að það verði, með réttu, sagt um heila þjóð.

Kveðja

Guðm. R. Ingvason

Guðm. R. Ingvason (IP-tala skráð) 9.10.2007 kl. 12:18

2 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Takk fyrir nafni. En hér erum við gjörsamlega ósammála. Rei
hefur þegar  á þeim stutta tíma sem það hefur verið til að
Orkuveitan getur hagnast nú þegar um 10. milljarða selji hún
hlut sinn í dag í REI. Þannig að það er líka hægt að selja bara
þann hluta í dag sem vegur upp á móti því áhættufjármagni sem
lagt hefur verið í REI. Þá yrði áhættan engin, en hagnaðarlíkur
verulegar fyrir borgarbúa eftir t.d 2 ár þegar allt yrði selt.

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 9.10.2007 kl. 13:19

3 identicon

Æ nafni, og þú líka???,

eins skynsamur og varfærinn og þú nú venjulega ert.

Hvar og hver eru REI verkefnin og vissan um fljóttekinn mikinn haqnað á þeim á næstu 12/18 mánuðum, sem tryggir það 100% á þeim tíma, að sá hagnaður auki við allt það sem OR hefur þegar lagt í pakkann, í peningum og öðrum eignum auk þeirrar dulinnar viðskiptavildar, sem þegar hefur verið verðlögð á  10 milljarða, svo að heildarsöluverð OR hlutans verði meiri en þeir 23-24 milljarðar, sem sagt er að hægt sé að fá fyrir sölu á OR hlutanum í dag?

Þá fáum við borgararnir a.m.k. örugglega greitt fyrir þessa duldu viðskiptavild. Það má ekki gleymast, að hún getur tapast á mjög skömmum tíma, ef engin eða fá arðbær verkefni fást á næstunni í bransanum. 

Ég hef hvergi séð að nokkur maður geti staðfest að þessi útrásarverkefni í jarðvarmavirkjunum séu nú þegar fyrir hendi, hvað þá að öruggt sé og tryggt að þau muni skila eins miklum hagnað og gefið er í skyn þessa dagana.  

Er það bara ekki nóg og gott mál og áhættan fyrir buddu hins almenna borgara þar með fyrir bí?

Getum, þú og ég og allir hinir (almenningur), ekki bara keypt síðar meir í "gróðakompaníinu" á almennum markaði, ef og þegar vel er farið að ganga? Er nokkuð að því? Þarf endilega að kaupa í þessu útrásarkompaníi  hlutafé fyrir mína, þína og annars almennings hönd endilega með opinberum "næstum því skatt"-peningum?

Hvað ef að verkefnin séu nú ekki svona auðfengin með svona miklum hagnaði á næstu 12/18 mánuðum?

Af hverju hefur ENEX engu skilað á sl. 5/7 árum? Miðað við trúna í dag er ótrúlegt að margir milljarðar í hreinan hagnað séu nú ekki þegar og fyrir löngu í þeirri útrás í höfn. Hvað klikkaði? Útrásin, verkefnin, hagnaðurinn?

Er ekki skömminni skárra fyrir okkur almenning, að fá auk alls kostnaðar, nú nettó þessa 10 milljarða fyrir viðskiptavildina heldur en að bíða eftir óvissum lottó vinningi?

Þú veist það nú vel sjálfur, betur en margir aðrir, að það er nú ekki góð latína að tekjufæra hagnaðinn áður en varan er seld, hvað þá áður en hún er líka búin til.

Hugsanlega verður bara enginn gróðavænlegur kaupandi til staðar eða bara blankur kaupandi í fjarlægri þoku og skýjamóðu.

Það má ekki gleyma því aðalatriði, að hér er um að ræða hagnað af almennri þjónustustarfsemi OR, hagnað sem orðið hefur til fyrir það, að við öll höfum greitt hærra orkuverð í mörg ár, en þjónustufyrirtækið þurft í sínum daglega rekstri og fyrir nauðsynlegri endurnýjun, sem vel hefur verið séð fyrir. Hagnaðarviðbótin umfram góðan venjubundinn rekstur ber í mínum huga fyrst og fremst vott um græðgi og stórkóngaáráttu stjórnendanna.

Svona gerum við ekki.

Aftur bestu kveðjur.

Guðm. R. Ingvason

Guðm. R. Ingvason (IP-tala skráð) 9.10.2007 kl. 15:16

4 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Takk fyrir nafni. Mjög margt af því sem þú segir er umhugsunarvert
og á fullan rétt á sér. Hins vegar virðist þessi mikla sýn á mikla
eftirspurn eftir jarðvarmaorku í heiminum vera helsta röksemdafæsrla þeirra sem sjá óþrjótandi verkefni framundan.
Minnisstæð eru stór orð forseta vors í þeim efnum nú alls ekki fyrir
löngu, og fjölmargra sérfræðinga þar um. - En, eins og þú segir,
þetta á allt eftir að koma í ljós, og ekkert er í hendi undir vorri
sól..........

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 9.10.2007 kl. 20:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband