Ruglið í Katrínu Júlíusdóttir um EES

 

   Það er hárrétt hjá Birni Bjarnasyni dómsmálaráðherra að
undrast  orð Katrínar Júlíusdóttir, þingmanns Samfylkingar-
innar og formanns  þingmannanefndar EES, um  að  endur-
skoða þurfi EES-samninginn. Ráðherra vonar að Katrín lesi
skýrslu Evrópunefndarinnar og átti sig á þeim sjónarmiðum
sem þar koma fram.

  Sannleikurinn er sá að kratar nota hvert tækifærið til að
rakka niður  EES-samninginn  og  tala niður íslenzka krónu
til  að  styrkja stöðu sína í þeim áróðri  að  Ísland  gangi í
Evrópusambandið  og  taki  upp evru  sem fyrst. Þá gerir
Katrín Júliísdóttir ásamt  samflokksmanni sínum  harða at-
lögu að íslenzku stjórnarskránni með þingsályktunartillögu
um að henni verði breytt svo auðveldara verði að framselja
fullveldið til Brussel.  - Vonandi að stór hluti Alþings sjái  í
gegnum slík áform og svæfi þá tillögu strax í fæðingu....


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband