Guðni talar hreint út

 

    Það er mikill kostur við  sérhvern  stjórnmálamann  að hann
komi  til  dyranna eins og  hann er klæddur  og  tali hreint  út
um hlutnina. Einn slíkur stjórnmálamaður  er Guðni Ágústsson
formaður  Framsóknarflokksins, en í  nýútkominni  bók sinni er
víða komið við varðandi menn og málefni. Þar á meðal varðandi
fjölmiðlafrumvarpið  svokallaða, en  þar hafa  ýmisir sakað hann
um  trúnaðarbrest við  forsetann að upplýsa um  það sem þeim
fór á  milli  í því  póitíska  stórmáli. Þver  á  móti   er uppljóstrun
Guðna mjög við hæfi, þar  sem  forsetinn  var  þar á  mjög  gráu
svæði, svo ekki sé meira sagt. Beitti þar mjög svo umdeildu valdi
til að koma í veg fyrir meirihlutavilja Alþingis, burtséð hvað mönn-
um finnst um sjálft innihald frumvarpsins. Þá er aðkoma Davíðs
og Halldórs  að  Íraksmálinu með hreinum  eindæmum. Evrópu-
sambandsdaður Halldórs er tíunduð, en þau viðhorf Halldórs
Ásgrímssonar  hafa  stórskaðað  Framsóknarflokkinn og flæmt
stórhluta kjósenda frá flokknum.

    Til að Framsóknarflokkurinn rísi upp til fyrra fylgis og stöðu í
íslenskum stjórnmálum þarf að fara fram hugmyndafræðileg upp-
stokkun innan hans, og uppgjör við hinn fámenna Evrópusam-
bandsarm sem myndaðist illu heilli kringum Halldór Ásgrímsson.
Hvort bók Guðna sé einn þáttur í því, á eftir að koma í ljós.

   Vonandi.....

     


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Heill og sæll, Guðmundur Jónas, æfinlega !

Hygg; að Hraungerðingurinn Guðni, þurfi að gera betur, en þetta. Hví, í ósköpunum, hefir hann; ekki ennþá, vikið fylgjendum Halldórs Ásgrímssonar, úr flokki ykkar, þó ekki væri, nema af siðferðisástæðum, einum og sér ? 

Með beztu kveðjum, sem fyrr / Óskar Helgi Helgason

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 25.11.2007 kl. 17:49

2 Smámynd: Ásta Steingerður Geirsdóttir

Það er merkilegt að Guðni Ágústsson skuli ekki hafa risið upp á afturlappirnar fyrr og losað um málbeinið ef honum  hefur svo oft verið  misboðið. Það er vissulega mun auðveldara að  gefa  út bók og tjá sig þar. Það er vitað mál að innan raða framsóknar eru mikil óánægja og hefur verið lengi. Það er heldur ekkert skrýtið og ég lái þeim það ekki, en þegar forystumenn stjórnmálaflokka eru að taka einhliða ákvarðanir, eins og Halldór á sínum tíma þá eiga flokksmenn einfaldlega að láta í sér heyra. Þetta mun kallast meðvirkni og lýsir einfaldlega ósjálfstæði flokksmanna. Þegar okkur er misboðið eigum við að láta í okkur heyra, annars erum við ekki sjálfum okkur samkvæm.

Ásta Steingerður Geirsdóttir, 25.11.2007 kl. 21:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband