Barnaskapur í utanríkisráðuneytinu

 

   Í Staksteinum Morgunblaðsins í gær er fjallað um barnaskapinn
í utanríkisráðuneytinu. Þar segir: ,, Það er eins og allsherjar barna-
skapur ráði viðhorfum embættismanna utanríkisráðuneytisins, sem
tjá sig fram og til baka í viðtengingahætti um hvað yrði, ef Ísland
næði kjöri í öryggsráði Sameinuðu þjóðanna".

   Staksteinar spyrja ,,hvers konar vangaveltur eru þetta hjá Grét-
ari Má Sigurðssyni og Kristínu Á. Árnadóttir, sem stýrir kosningabar-
áttu Íslands, hér í Morgunblaðinu í gær? Fyrst veltir ráðuneytisstjór-
inn því fyrir sér, að nái Ísland kjöri, fari það þegar í upphafi árs með
formennsku í öryggisráðinu. Síðan segir ráðuneytisstjórinn að fyrst
þurf þó að ná settu marki, þ.e að tryggja Íslandi sætið í ráðinu."

  Síðan klingja Staksteinar út með því að segja að ,,þótt Kristín Á.
Árnadóttir segir að það sé metnaðarmál allra í utanríkisþjónust-
unni að vel takist til, væri kannski ráð að hún og aðrir starfsmenn
utanríkisþjónustunnar horfist í augu við þá bláköldu staðreynd, að
það er afskaplega ólíklegt að Ísland nái kjöri í öryggisráðið og því
ótímabært með öllu að hafa áhyggjur af formennsku í öryggisráðinu.
Eða hvað? ".

   Vert er að taka heilshugar undir þetta með Staksteinum. Það er
með hreinum ólíkindum hvað sumir embættismenn láta sig detta í
hug og dreyma um. Það versta er þó þegar þeir smita og jafnvel
blinda stjórnmálamennina, eins og gerst hefur í þessu öryggis-
ráðsmáli. Engar líkur eru á því að Ísland nái kjöri í þetta ráð, enda
hefur það EKKERT þangað að gera. Samt er haldið áfram að  sól-
unda fé okkar skattborgara í þetta ofurrugl svo hundruði milljóna
króna varðar, sem alls víst að endi í heilum  milljarði  þegar  upp
verður staðið. Þetta utanríkisráðuneyti  er að  verða meiriháttar
frjárhagsbaggi á þjóðinni eins og það hefur þanist út á s.l árum.
Skemmst er að minnast þegar Halldór Ásgrímsson utanríkisráð-
herra sem illu heilli ásamt Davíð Odssyni kom þessari vitleysu á
stað,  festi kaup á einu  sendiráðshúsi í Japan fyrir hátt í milljarð
króna.  Hvers vegna í ósköpunum er allt þetta sukk og liggur við
að segja svínarí látið viðgangast  á sama  tíma og t.d  hálfgert
neyðarástand er að skapast víða í heilbrigðisgeiranum vegna
fjárskorts?

   - Þetta er SKANDALL !!!  Hreinn og klár SKANDALL!!!! 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gestur Guðjónsson

Við skulum ekki slá þessu föstu. Árásir Tyrkja á Kúrda hlýtur að minnka líkur þeirra á að ná kjöri og svo þarf Jörg Heidi (man ekki hvernig það er skrifað) ekki annað en að ná góðu flugi til að Austurríkismenn verði skotnir í kaf.

Þá er litla Ísland allt í einu í allt annarri stöðu, hvort sem það er gott eða slæmt...

Gestur Guðjónsson, 16.12.2007 kl. 23:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband