Milljarðar sem VG hefðu komið í veg fyrir


   Landsbankinn skilaði tæpum 40 milljarði í hagnað á s.l
ári EFTIR SKATTA. Sem þýðir fleiri milljarða í ríkissjóð. Þá
eiga hinir bankanir tveir sem líka voru ríkisbankar,  eftir
að skýra frá sinum hagnaði, sem hefur einnig verið um-
talsverður. Þannig að ríkissjóður er að hagnast verulega
á hverju ári við það að fyrrverandi ríkisstjórn seldi þessa
banka úr ríkiseigu. Sameiginlegur sjóður landsmanna
hefur stórgrætt og mun áfram gera. Fyrir utan þá gífur-
legu efnahags þýðingu sem sala bankanna hefur haft
fyrir íslenzkt efnahagslíf og þjóðarbú á s.l árum. 

  Ef afturhaldsstefna Vinstri Grænna hefði ráðið för væru
hér 3 steinrunnir ríkisbankar, fáum eða engum til gagns.

  Það er sorglegt að í byrjun 21 aldar skuli enn vera uppi
á Íslandi afdankaður sósíaliskur flokkur. sem er í engum
takt við íslenzkan raunveruleika og öll þau tækifæri sem
hann hefur upp á að bjóða.

mbl.is Nærri 40 milljarða hagnaður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gammurinn

Það er líka ástæða fyrir því að um 80% þjóðarinnar kýs EKKI Vinstri græna. Kommúnismi og góðæri fer ekki saman.

Gammurinn, 28.1.2008 kl. 22:46

2 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Án þess að ég sé á móti því að bankarnir séu í einkaeigu. Þá finnst mér rétt að benda þér á að það væru jú líkur á því að Ríkið væri að hagnast enn meira á bankanum í dag en sem nemur sköttum. Því að ef ég man rétt var bankinn rekin með hagnaði þegar hann var seldur. Og ef við færum líkur að því að um 10 af þessum 40 milljörðum fari til ríkisins þá eru það 4 milljarðar. Og bankinn væri örugglega að hagnast um meira en þetta. Og eins má benda á að ríkið fékk ekki nema um 12 milljarða fyrir bankann sem er jú ljóst að var smánarleg upphæð.

En ég er samt glaður að það gengur vel hjá Björgólfs feðgum. Þetta eru klárir karlar og starfsfólk þeirra.

Magnús Helgi Björgvinsson, 28.1.2008 kl. 22:48

3 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Magnús. Hefðu bankanir verðið áfram í ríkiseigu hefði aldrei orðið
hinni mikla útrás sem mestu tekjunar koma af. Hagnaðurinn EFTIR
skatta var 40.OOO en tekjuskattur fyrirtækja er 18% þannig að
tekjur í ríkissjóð eru nú gott betur en 4.millj líklega 7-8 fyrir utan
alla óbeinu skattana af starfsfólki og velstuskatta sem það skapar.

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 29.1.2008 kl. 13:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband