Gæti þetta gerst á Íslandi ?


   Þúsundir komu saman á Lækjatorgi  í morgun, til þess
að mótmæla endurbirtingu súdanskra fjölmiðla á skop-
teikningum af Jesú Kristi. Íslenzk stjórnvöld studdu mót-
mælin, og tók meðal annrs forseti Íslands, Herra Ólafur
Ragnar Grímsson, þátt í þeim. Lokað var allri umferð um
torgið meðan mótmælin fóru fram. Hundruð langferða-
bíla  og vöruflutningabíla keyrðu fólki á staðinn. Mikið
umferðaöngþveiti skapaðist í borginni, vegna fólksins
sem streymdi á torgið.  Súdanski fáninn var brenndur.

   Nei, held ekki. En þetta gerðist nú samt í Khartoum í
Súdan í morgun, sbr. meðf.frétt.

  Jú, menningarheimanir geta svo sannarlega verið ólíkir.

  Ótrúlega ólíkir....

  En, þvílíkt trúarofstæki !!!!
mbl.is Fjöldamótmæli gegn Dönum í Súdan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Valur Jensson

Nei, að sjálfsögðu myndi þetta aldrei gerast hér, Guðmundur. En höfum svo líka í huga, að Múhameð var maður, en Jesús Kristur er Guð og maður. Það er því beint guðlast að svívirða hann, sem þó ýmsir gera, og miklu alvarlegra en að teikna skopmynd af Múhameð.

En varðandi ofstæki ráðandi manna í Súdan (sem vel að merkja njóta stuðnings Kínverja) er þess að geta, að ekki einungis eru þeir að ráðast á fólkið varnarlitla í Darfúr, heldur einnig á kristna menn í nágrannaríkjum og hafa búið til í því skyni herflokk undir fölskum merkjum kristinna! Það óþjóðalið drepur karlmennina, en tekur konurnar eða a.m.k. óspjölluðu meyjarnar að herfangi til að neyða þær í hjónabönd með múslimskum körlum. – Svo geta Sameinuðu þjóðirnar endalaust tvínónað við að taka í lurginn á þessari grimmdarstjórn!

Jón Valur Jensson, 27.2.2008 kl. 11:20

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Guðmundur er það ekki rasismi samkvæmt þöggunarsinnum hérlendum að tala svona um aðra kynþætti en okkar eigin  Annars góð færsla hjá þér.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 27.2.2008 kl. 12:38

3 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Mikið rétt Ásthildur. Tel mig hins vegar fjalla hér um trúarofstæki en
ekki kynþætti. Alla kynþætti ber ég að sjálfsögðu virðingu fyrir.

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 27.2.2008 kl. 12:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband