Kjölur lagður að nýju varðskipi


  Í gær var kjölur lagður að nýju glæsilegu varðskipi í Chile
að viðstöddum  dómsmálaráðherra. Skipið  mun  koma til
Íslands haustið 2009. Fagna  ber þesum tímamótum, en
ákvörðun um smíði þess var tekin af fyrrverandi ríkisstjórn.

  Ljóst er að varðskipaflotinn er gamall og þarf að endur-
nýjast. Þá þarf skipum að fjölga. Því er eðlilegt að íslenzk
stjórnvöld kanni  hvort NATO geti komið með einhverjum
hætti að uppbyggingu flotans, ekki síst þar sem eftirlit á
Norðurslóðum þarf að efla í náinni  framtíð. Komið  hefur
upp sú hugmynd að í tengslum við slíkan stuðning  frá
NATO verði skipin vel búin tækjum, þ.á.m tækjum  til  kaf-
bátaleitar.

  Íslendingar þurfa í stórauknu mæli að taka þátt í sínum
öryggis-og varnarmálum sem sjálfstæð og fullvalda þjóð.

   Því er vonandi að tekin verði mjög fljótlega ákvörðun um
smíði á öðru öflugu varðskipi.

   Fyrir því yrði öruggur  þingmeirihluti...

  Nema Samfykingin bregði fæti fyrir því eins og ÖLLU ÖÐRU!
mbl.is Kjölur lagður að varðskipi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæll Guðmundur.

Þetta er fagnaðarefni svo mikið er víst.

Tek heilshugar undir með þér varðandi það atriði hve mjög við þurfum að efla sjálfstæði okkar í þessum efnum.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 28.3.2008 kl. 01:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband