Dómsmálaráðherra hlusti á lögregluna !


  Það gengur auðvitað alls ekki að innan mikilvægs hóps lög-
reglu og tollvarða sé bullandi óánægja þannig að einn virtasti
lögreglustjóri landsins óski  eftir að ræða starfslok sín. Þegar
svo er málum komið hlýtur að vera eitthvað míkið að.

  Björn Bjarnason dómsmálaráðherra er erlendis. Því verður
ekki á annað trúað en að við heimkomuna hann gangi í málið
og leysi það í sátt og samlyndi við undirmenn sína. Allt of míkið
er í húfi eins og ástandið er í dag.

  Þjóðin krefst þess að sátt sé innan svo mikilvægs málaflokks!

  Dómsmálaráðherra ber skylda til að sjá til þess að svo verði!

   
mbl.is Þungt í lögreglumönnum í kjölfar uppsagnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Óskar Arnórsson

Það eru hrapaleg mistök að Björn skuli gera þetta, eins vel og mér líkar  við Björn persónulega.

Að sýslumaður segi upp í mótmælaskyni er alveg hroðalegt. Smyglarar fíkniefna óttast engan mann eins mikið eins og hann...smyglarar sjá fram á glaða daga ef Björn reynir ekki að fá besta fíkniefnardeldar mann sem Íslendingar eiga, tilbaka til vinnu...

Óskar Arnórsson, 28.3.2008 kl. 20:52

2 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Nú er ég hjartanlega sammála. Þetta embætti hefur verið að standa sig frábærlega. Maður skilur ekki þessi viðbrögð hjá Birni. Þetta virtist byrja á því að Sýslumaður kemur með tillögur um niðurskurð þar sem að fjárveitingar duga ekki. Þá er bara rokið í að skipta þessu upp. Og dreifa á 3 ráðuneyti og sagt að það spari. Get ekki séð hvernig að það getur sparað nokkuð að þurfa að ráða kannski 3 stjórnendur í staðinn.

Gæti verið að Björn hafi orðið reiður við umræðunni um niðurskurðinn. Eins og þegar Davíð varð reiður út í Þjóðhagsstofnun. 

Magnús Helgi Björgvinsson, 28.3.2008 kl. 21:04

3 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

Hvaðeridda. Ekki vera að jagast í Bjössa.  Hann hefur örugglega ekkert komið nálægt þessu. Má heldur ekki vera að því. Of mikið að gera í blogginu.

Brjánn Guðjónsson, 28.3.2008 kl. 21:23

4 Smámynd: Sveinn Hjörtur

Sammála.

Sveinn Hjörtur , 28.3.2008 kl. 22:03

5 Smámynd: Kristján Pétursson

Að skipta embættinu í þrjár einingar,sem komi undir þrjú ráðuneyti,er  arfavitlaust er varðar alla stjórnsýslu.Lögreglan,tollgæslan og öll öryggisvarsla verður í flugstöðinni að vera undir einni stjórn,þar sem hér er um samverkandi störf að ræða.

Jóhann R.Benidiktsson,lögreglustj.hefur sýnt mikið frumkvæði,dugnað og þor í starfi.Hann og löggæslumennirnir er ein samhent og sterk heild,sem má ekki brjóta upp.Ég þekki þessi störf af eigin reynslu,þau voru öll undir utanríkisráðhr.meðan varnarliðið var á samningssvæðunum,síðan komu þau eins og önnur embætti undir dómsmálaráðhr. Lögreglustj.embættið á Keflav.flugv.var síðan sameinað  lögreglustj.embættinu í Reykjanesbæ.

Rök dómsmálaráðhr.að það veiki ekki löggæsluna að embættið komi undir þrjú ráðurneyti er hreint og klárt bull.

Kristján Pétursson, 28.3.2008 kl. 22:13

6 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Og þarna mælir maður með reynslu. Finnst ekki hægt þegar að bæði stjórnmálamenn og svo aðriri í stjórnsýslunni eru að véla með þessi mál. Finnst líka áberandi að það eru margir ósáttir hvernig skipulag lögreglumála er orðið á höfuðborgarsvæðinu eftir sameiningu. Það þýðir náttúrulega ekki að vera að breyta einhverju bara til að breyta. Það verður að vera í samráði við þá sem eiga að starfa undir þessu skipulagi og fara að ráðum þeirra sem vinna störfin.

Magnús Helgi Björgvinsson, 28.3.2008 kl. 22:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband