Skrípaleikurinn út um þúfur !


   Ljóst er að þau mótmæli sem ungliðar Sanfylkingar og Vinstri-
grænna hugðust efna til við Ráðhúsið í morgun, fór gjörsamlega
út um þúfur.  Sárafáir mættu, enda fengu borgarbúar meira en
nóg af skrílslátum sömu aðila í janúar s.l. Borgarbúar virðast því
almennt sáttir við hinn nýja borgarstjórnarmeirihluta sem nú
hefur verið myndaður og nýkjörinn borgarstjóra.

  Engu að síður er það umhugsunarvert að það var Samfylkingin
sem hvatti til mótmælanna í morgun. Svo virðist sem rauðlitaður
uppvakningur sé tekinn að grassera þar á bæ. Uppvakningur,
sem á engan hljómgrunn.

  Vert er svo í lokin að að óska nýjum borgarstjórnarmeirihluta
og borgarstjóra allra heilla.  Borgarbúar hafa nú loks fengið
sterka og samhenta borgarstjórn, sem starfa mun út kjörtíma-
bilið.
mbl.is Svik, lygi og pólitísk slátrun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Björgmundur Örn Guðmundsson

Sammála

Held að pólitíkinni hafi sett niður við þessi skrílslæti rauðliðanna.

Merkilegt að þegar málefnaþurð einkennir málflutninginn þá er gripið til gjörnings!

Það væri kannski betra að rauðliðarnir hefðu eitthvað fram að leggja og gerðu eitthvað í stað þess að vera alltaf á móti og vera með sýndarmennsku.

 Stjórnmál snúast um framkvæmdir en ekki sýndarmennsku eða speglapólitík.

 Kv.Björgmundur

Björgmundur Örn Guðmundsson, 21.8.2008 kl. 13:14

2 Smámynd: Bjarni Baukur

Sammála. Ungliðahreyfingin er ekki mjög virk og veit varla um það hvað þetta snýst ! Sá að Mörður Árnason var þarna ( einn sá allra misheppnaðasti stjórnmála maður sögunnar) til að hveta ! Kjánalegt !

Bjarni Baukur, 21.8.2008 kl. 13:31

3 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Stjórnmál snúast ekki um framkvæmdir!!!!

Stjórnmál snúast um allt annað! Stjórnmál snúast um að skapa og halda utan um þjóðfélag sem stendur vörð um hagsmuni og lífsskilyrði einstaklingana sem mynda þjóðfélagið. Framsókn og Sjálfstæðismenn halda að hamingja þjóðarinnar sé fólgin í því að fá hingað hóp erlendra verkamanna til að virkja sem mest og gefa svo nærri því útlendum fyrirtækjum orkuna. Eins að mylja undir vini sína sem hafa á nokkrum árum orðið að milljarðamæringum eftir að þeim var m.a. færðir bankarnir.

 Aðrir flokkar hugsa um þetta í  og leggja áherslu á að fólki sé tryggð grundvallar þjónusta og almenn velferð. Og vilja að atvinna og fjárfesting sé hugsuð til enda. Ekki rokið af stað án þess að huga að afleiðingunum

Fjöldi fólks við ráðhúsið ræðst kannski af því að flestir eru að vinna klukkan 10. Nema auðsjáanlega Framsóknar og sjálfstæðismenn sem fylltu pallana.

Magnús Helgi Björgvinsson, 21.8.2008 kl. 20:29

4 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Magnús minn. Enn og aftur. Til að tryggja STERKT og ÖFLUGT velferðarkerfi
fyrir ALLA landsmenn þarf að vera í landinu ÖFLUG framleiðslufyrirtæki sem
skapar okkur TEKJUR, GJALDEYRIR. Til þess VERÐUM við að nýta alla mögu-
leika eins og kostur er og þar eru okkar endurnýjanlegu orkulindir svo
dýrmætar. Sem sagt. VELFERÐ er beintengd ÞJÓÐARFRAMLEIÐSLU og ÞJÓÐARTEKJUM. Þetta er ekki flóknara en það. En virðist afar torskilið í
heilabúum ykkar vinstrisinna. Alvarlegast er  þó það  þegar við það bætist
að Samfylkingin er reiðubúin til  að fórna okkar helstu auðlindum og þá
afrekstur þeirra í hendur útlendinga, með því t.d  að hafa áfram frjálst
framsal á fiskikvótum við inngöngu í ESB.  Er nema að  furða þótt maður
sé harður and-vinstrisinni Magnús minn ?

Svo þakka ég þér hinn vestfirski Björmundur innlegg þitt hér og einnig
þú Bjarni.

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 21.8.2008 kl. 21:21

5 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Ríkið var að skila 89 milljarða hagnaði. Fyrirtæki þurfa að ráða útlendinga í í flest þjónustustörf. Hvaða forsendur eru fyrir því að nú þurfi sérstaklega að efla atvinnulífið. Við höfum ekki fólk til starfa. Þurfum að flytja inn fólk. Minni t.d. á að hörmulega slysið sem var í Helliheiðavirkjun sýnir að þar er uppistaðan af starfsfólki þar eru útlendingar. Rauði Krossinn þurfti að mæta með túlka til að veita áfallahjálp.

Það er ríki og borg sem skapa umgjörð um atvinnulífið. Það er svo atvinnulífið sjálf sem sér um að þróast. 

Minni einnig á að nýr borgarstjóri sagði í dag að Bitru virkjun yrði ekki reist á þessu kjörtímabili. Það á eftir að rannsaka þarna. Þannig að forsenda sem gefin hefur verið fyrir þessum meirihluta er því veik.

Einnig minni ég að skuldir OR vegna virkjana var um 85 milljarðar í upphafi þessa árs. Þær hafa hækkað um 45 milljarða vegna gengisþróunar. Helda að það væri nú heillaráð að fara að staldra þarna við og hugsa sinn gang.

Magnús Helgi Björgvinsson, 21.8.2008 kl. 23:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband