Viðurkenna ber sjálfstæði Ossetíu og Abkasíu !


   Hreggviður Jónsson fyrrv. þingmaður Sjálfstæðisflokksins skrifar
athyglisverða grein í Mbl. í dag. Þar hvetur hann til að Suður-Ossetía
og Abkasía verði viðurkennd af Íslandi sem sjálfstæðar þjóðir. Undir
þetta ber að taka nema hvað Norður-Ossetía verður einnig að taka
með. Ossetar eru EIN þjóð, með sérsstaka  tungu og menningu. Því
verður bæði Suður-og Norður Ossetía að viðurkennast sem sjálfstætt
ríki. Annað er óverjandi!

   ALLAR þjóðir eiga rétt á SJÁLFSTÆÐI og FULLVELDI. ALLAR ÞJÓÐIR
sem geta tilvísað til sinnar sérstöku þjóðmenningar og tungu.  Á
þetta hafa heimsvaldasinnar fyrr og síðar horft framhjá í sínu heims-
valdabrölti. - Engin þjóð ætti að skilja betur en Íslendingar rétt sér-
hverrar þjóðar á grundvelli sérstakar þjóðmennigar og þjóðtungu rétt
til FULLS ÞJÓÐFRELSIS.  - 

    Þetta  eiga ALLIR sjálfstæðissinnar og þjóðlega sinnaðir menn að skilja
og virða.   Allt annað er heimsvaldabrölt undir hinum ýmsu formerkjum! 

mbl.is ESB íhugar að beita Rússa refsiaðgerðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Fannar frá Rifi

Við eigum að bæta um og lýsa yfir stuðningi ekki bara Abkasíu og suður Ossetíu heldur lýsi yfir stuðningi við sjálfstæði bæði Norðurs og suðurs Ossetíu.  Þetta er jú ein þjóð sem býr í tveimur löndum.

Við þetta má bæta við eigum umsvifalaust að lýsa yfir stuðningi við sjálfstæði Kúrdistan. Kúrdar eru forn þjóð sem nú býr í alla vega 4 löndum. Tyrklandi, Írak, Sýrlandi og Íran.  

Við lýstum yfir sjálfstæði Kosovo. Núna þýðir ekki að ganga á bak stefnu okkar í utanríkismálum heldur verðum við að halda áfram nema um tvískinnung sé að ræða.

Fannar frá Rifi, 28.8.2008 kl. 14:37

2 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Já sæll Fannar. Menn voru fljótir að viðurkenna Kosovo, Kosovó var hérað
í Serbíu. Engin sérstök þjóð býr þar heldur þjóðarbrot og trúarhópar. Engin
sérstök Kosovósk þjóðmenning né tunga. Allt annað með Osetíu t.d. Þar
er sérstök þjóð. Sammála þér að viðurkenni bæði Suður-og Norður Ossetíu
sem sjálfstætt ríki. Það bera Rússar einnig að gera, ekki bara  að viðurkenna Suður-Ossetíu.

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 28.8.2008 kl. 17:20

3 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Sammála þér Guðmundur. Þetta er náttúrulega með afbrigðum. Þarna er þjóðarbrot sem á lítið eða ekkert sameiginlegt með Georgíu. Þetta fólk talar að mestu rússnesku. Skil ekki viðbrögð Nató, USA og  Evrópu við þessum atburðum. Það er eins og allir séu búnir að gleyma því að það var stjórn Georgíu sem réðst inn í Suður Ossetíu og þá og ekki fyrr komu Rússar að málinu. Svona miðað við að Georgía hefur mjög máttlausan her fer maður að trúa því sem Rússar eru að velta fyrir sér hvort að tengsl séu milli forsetarkosninga í USA og þessara atburða. Viðbrögð Bandaríkjana eigi að fegra Bush og síðan McCain.

Veit að vegna fordæmis eru margar þjóðir á móti svona sjálfstæðisyfirlýsingum. T.d. Spánn og það tengist baráttu Baska fyrir sjálfstæði.

En þarna erum við að tala um í raun 2 þjóðir í Georgíu sem vilja ekki vera saman

Magnús Helgi Björgvinsson, 28.8.2008 kl. 23:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband