Benedikt páfi ver Pius x11


   Það er rétt hjá Benedikt páfa XVI að tala fyrir málstað Pius
páfa xII, en Pius hefur oft verið hafður fyrir mjög rangri sök í
síðari heimsstyrjöldinni.  Vonandi að hin ómaklega gagnrýni
á Pius verði nú hætt.  Pius eða Eugenio Maria Giuseppi  var
uppi 1876-1958, og varð páfi 1939 í upphafi stríðsins. Sagt
er að hann hafi mjög reynt að koma í veg fyrir seinni heims-
styrjöldina.  Hann var umbótasinni og beitti sér m.a fyrir
umbótum á guðþjónustu.

  Benedikt páfi er mjög merkur páfi og hefur margt gott
tekið sér fyrir hendur. 
mbl.is Benedikt páfi ver Pius XII
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: el-Toro

Vatikanið aðstoðaði yfirmönnum nasista og ss liðum að flýja er ww2 kláraðist.  þessi hjálparsamtök sem sáu um að koma nasistunum burt kölluðust odessa.  ágætis grein á wikipedia.org.

allavega voru prestar undir stjórn vatikansins sem aðstoðuðu nasista að flýja í gegnum Ítalíu til Spánar.  en þaðan fóru þeir flestir til suður ameríku.  merkilegt nokkuð að CIA eða OSS eins og þeir hétu þá, notuðu Odessa og þá líka prestana frá Vatikaninu til að koma mönnum í burtu sem þeir sáu sér hag í að hafa í sinni þjónustu.

staðreind.

el-Toro, 19.9.2008 kl. 21:09

2 Smámynd: el-Toro

gleymdi einu, aðalmálinu reindar.  svo er það spurning hvort Pius páfi hafi á einhvern hátt vitað af þessu athæfi eða hafi samþykkt það hljóðlega.  kannski var hann "hlutlaus".

sennilega eru ekki til neinar heimildir fyrir neinu af þessu.  þannig að við vitum sennilega aldrei hvað gerðist "bak við tjöldin" þar.

el-Toro, 19.9.2008 kl. 21:13

3 Smámynd: Jón Valur Jensson

Þetta voru merkilega skrýtin innlegg sem sögðu nánast ekki neitt! En ég þakka þér pistil þinn, Guðmundur Jónas. Á ég sjálfur eftir að fjalla um þessi mál síðar, en hyggst vísa lesendum mínum á þessa vefsíðu þína. – Kær kveðja.

Jón Valur Jensson, 20.9.2008 kl. 14:37

4 Smámynd: Óli Jón

Benedikt páfi gerði nú betur í því að taka til í eigin ranni áður en hann fer að sópa út hjá starfsbróður sínum, Píusi. Í kaþólsku kirkjunni í dag er slíkur fjöldi vandamála að þarna er páfi klárlega að sækja vatnið yfir lækinn. Ekki birgði t.d. hinn réttsýni og góði Benedikt, sem getur verið svo ákveðinn og staðfastur í því sem hann trúir á að hann er oft nefndur Rottweiler Guðs, brunninn meðan börn um allan heim voru að detta í hann. Það var öðru nær!!

Það er holur hljómur í því sem kemur frá svona manni.

Óli Jón, 20.9.2008 kl. 16:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband