Þjóðlegt borgaralegt afl á leðinni !


   Allt bendir til að áhuginn fyrir stofnun stjórnmálaflokks á
þjóðlegum borgaralegum grunni fari dag vaxandi. Í kvöld-
fréttum RÚV kom fram hjá Bjarna Harðarsyni, sem sagði af
sér þingmennsku fyrir Framsóknarflokkin fyrir skömmu, að
mikill áhugi virðist vera meðal framsóknar- og sjálfstæðis-
manna  fyrir stofnun slíks flokks.  Evrópumálin  væru  þar
aðal ástæðan. Sjálfur útilokar Bjarni ekki aðkomu að slíkum
þjóðlegum borgarasinnuðum flokki.

  Það er alveg ljóst að gríðarleg og hatrömm átök eru  í upp-
siglingu í Evrópumálunum. Samfylkingin og önnur and-þjóð-
leg öfl ætla að nýta sér efnahagsöngþveitið og knýja  fram
aðildarumsókn að  ESB. Svo virðist að  henni sé  að  takast
það. ESB-trúboðið  hefur  nú yfirtekið  Framsókn, og  innan
Sjálfstæðisflokksins gera ESB-raddirnar háværar, og hygg-
jast hafa yfirhöndina á landsfundi flokksins í janúar. Í ljósi
alls þessa er því að skapast sterkur grundvöllur fyrir þjóð-
legt borgaralegt afl. Sem gæti auk þess orðið hluti að þeirri
nauðsynlegri pólitískri uppstokkun og hreinsun á mið/hægri
kanti íslenzkra stjórnmála eftir bankahrunið og þeirri gríðar-
legri spillingu sem því tengist. - Þá yrði æskilegt að sem flest-
ír úr Frjálslyndaflokknum kæmu til liðs við slíka þjóðlega borg-
aralega fjöldahreyfingu.

   Það hefur aldrei verið eins hart sótt að íslenzku fullveldi og
sjálfstæði og einmitt nú. Því hefur aldrei verið eins mikilvægt
að öll þjóðleg öfl sameinist í varnarbaráttunni sem fram undan
er. Því einungis SAMEINUÐ þjóðleg öfl geta nú snúið vörn  í
sókn. Því er afar brýnt að vettvangurinn skapist sem fyrst  í
þjóðlegum borgaraflokki.

   Áfram Ísland !

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Svona sér Egill Helgason þetta fyrir sér á síðunni sinni:

Til dæmis mætti hugsa sér þetta:

Það verða þrír flokkar við miðjuna sem aðhyllast Evrópusambandsaðild.

Sjálfstæðisflokkur sem þó mun minnka mikið.

Samfylking sem enn er í sterkri stöðu í skoðanakönnunum. Kæmi ekki á óvart þótt það breyttist.

Framsókn sem kannski lifir af. Það er þó alls ekki víst.

Vinstri grænir ættu að verða mjög sterkur flokkur á vinstri vængnum. Meðal annars af því að þeir eru meiraclean en hinir.

Og á hægri vængnum gæti myndast nýtt stjórnmálaafl.

Heimastjórnarflokkurinn undir forystu Davíðs Oddssonar. Liðsmenn gætu til dæmis orðið Guðni Ágústsson og Bjarni Harðarson. Og svo Björn Bjarnason, Andrés Magnússon og Hjörtur J. Guðmundsson.

Eða varla ætlar Davíð að binda trúss sitt við Sjálfstæðisflokk sem fer með þjóðinni inn í Evrópusambandið?

Miðað við þetta ættu Heimastjórnarflokkurinn og Vinstri grænir líklega mesta samleið – og svo miðjuflokkarnir þrír.

Ert þú þá ekki Guðmundur að sveiflast meira til hægri?  Ef að heimsstjórnarflokkurinn mundi verða til hægri við Sjálfstæðisflokkinn?

Magnús Helgi Björgvinsson, 19.11.2008 kl. 21:36

2 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæll Guðmundur.

Án efa mun fara fram eitthvað uppgjör, í sviði stjórnmálanna, hins vegar mun þar skilja á milli manna sem aðhyllast núverandi fiskveiðistjórn og þeirra sem gera það ekki.

Frjálslyndi flokkurinn hefur nú þegar fengið í sínar raðir fyrrum liðsmenn úr Framsóknarflokknum fleiri en einn, og ég spáí því að þangað muni menn koma sem flýja sína gömlu flokka, þótt Egill minnist ekki á þann flokk í því se Magnús setur inn hér að ofan, en það er svo venjulegt að varla tekur að nefna.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 20.11.2008 kl. 01:22

3 Smámynd: Jón Aðalsteinn Jónsson

Láttu vita ef að eitthvað verður úr þessu

Jón Aðalsteinn Jónsson, 20.11.2008 kl. 22:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband